Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. ágúst 2026 08:02 Fedorov segir Úkraínumenn hafa staðið sig vel í nýsköpun í baráttu sinni gegn Rússum en andstæðingurinn hafi einnig sótt í sig veðrið. epa/Filip Singer Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, segir mögulegt að Úkraínuher muni geta gert árás á Rússland með heimsmíðaðri skotflaug á næstu þremur til sex mánuðum.
Úkraínumenn hafa hingað til reitt sig á dróna til að gera árásir á skotmörk í Rússlandi. Þeir gerðu til að mynda eina umfangsmestu árás sína hingað til í gær, þar sem rússnesk yfirvöld sögðust hafa skotið niður 1.478 dróna. Þeir hafa einnig notast við heimagerðar stýriflaugar, sem Úkraínumenn hófu að framleiða í fyrra Rússum myndi hins vegar reynast erfiðara að varna skotflaugaárásum, en dróna- og stýriflaugaárásum, og í samtali við CBS News sagði Fedorov mikilvægt að Úkraínumenn nýttu alla mögulega tækni í baráttu sinni við Rússa. Sjá einnig: Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Drónar og stýriflaugar fljúga tiltölulega lágt með jörðu á leið til skotmarka sinna og er hægt að granda þeim með ýmsum leiðum. Skotflaugar fljúga hins vegar hátt til himins eða upp í gufuhvolfið og falla til jarðar á gífurlegum hraða, þar sem þær lenda á skotmörkum sínum. Fedorov sagði Úkraínumenn hafa verið duglega við nýsköpun en varaði jafnframt við því að Rússar væru einnig að taka framförum. Ráðherrann fyrrverandi leiddi drónabyltingu Úkraínu og gríðarleg mótmæli brutust út fyrr í sumar þegar hann var látinn fara í pólitískum hrókeringum. Fjórir létust og að minnsta kosti fjórtán særðust í árásum Rússa í gær. Meðal skotmarka var stálvinnsla í Kryvyi Rih, heimabæ Vólódimírs Selenskís forseta. Þá gerðu Rússar árás á vinsælan útibókamarkað í Pochaina.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira