Kveiktu í tveimur moskum Eiður Þór Árnason skrifar 27. júlí 2026 14:55 Palestínumenn biðja í mosku sem brann í árás ísraelskra landtökumanna í þorpinu Qusra á Vesturbakkanum. Ap/Leo Correa Ísraelskir landtökumenn hafa kveikt í bílum, ræktarlandi og tveimur moskum á hernumda Vesturbakkanum, að sögn palestínskra embættismanna. Spenna heldur áfram að aukast á svæðinu.
Nýjustu árásirnar koma tveimur dögum eftir átök milli landtökumanna og Palestínumanna nálægt þorpinu Tal, þar sem fjórir Palestínumenn og tveir Ísraelar létu lífið. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu en hóparnir sökuðu hver annan um að ýta undir ofbeldið á föstudag. Átökin hafa ýtt enn frekar undir spennuna á Vesturbakkanum, þar sem ofbeldi öfgafullra landtökumanna gegn Palestínumönnum hefur farið sívaxandi. Palestínskir miðlar greina frá því að tvö þorp á hernumda Vesturbakkanum hafi orðið fyrir árásum landtökumanna í nótt, þar sem unnin voru skemmdarverk á bílum, eignum stolið og hatursfullt veggjakrot spreyjað á veggi. Kveikt í moskum í Qusra og Kour Abdul Azim Wadi, bæjarstjórinn í Qusra, sagði að landtökumenn hefðu kveikt í mosku sem var enn í byggingu og spreyjað kroti á veggi moskunnar þar sem lesa mátti orðið „hefnd“. Ísraelsher hefur sagt að hersveitir hafi verið sendar til Qusra og að lögreglan muni rannsaka málið og safna sönnunargögnum. Palestínskir embættismenn segja að landtökumenn hafi kveikt í annarri mosku í þorpinu Kour og spreyjað slagorðum á veggi hennar. Palestínskur maður þrífur herbergi í húsi sem skemmdist eftir árás ísraelskra landtökumanna daginn áður í þorpinu Sarra, nálægt borginni Nablus á Vesturbakkanum, laugardaginn 25. júlí 2026.Ap/Leo Correa Palestínumenn segja að landtökumenn hafi gert fjölmargar árásir á þorp víðs vegar um Vesturbakkann eftir mannskæðu átökin í Tal á föstudag. Ísraelski herinn hefur gert húsleitir og handtók yfir 130 einstaklinga um helgina í aðgerð sem hefur verið lýst sem aðgerð gegn hryðjuverkum, að því er fram kemur í frétt BBC. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hét því að grípa til „kröftugra aðgerða“ eftir atvikið í Tal. Þar á meðal kemur til greina að rífa heimili Palestínumannanna tveggja sem sagðir eru hafa átt aðild að málinu.
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira