Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Kjartan Kjartansson skrifar 24. febrúar 2026 07:36 Barbro Ehnbom með karldansara á viðburði í New York árið 2015. Hún átti þá enn í samskipum við Jeffrey Epstein. Vísir/Getty Sænsk-bandarísk kaupsýslukona sendi Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninum, myndir af ungum og efnilegum konum sem hún var með í læri. Epstein valdi sér svo konur sem hann vildi hitta.
Nafn Barbro Ehnbom kemur fyrir í hundruðum tölvupósta sem bandaríska dómsmálaráðuneytið gerði nýlega opinbera upp úr rannsóknum á Epstein og kynferðisbrotum hans. Vinátta þeirra var hafin áður en Epstein var dæmdur fyrir kynferðisbrot árið 2008 og héldu samskipti þeirra áfram þar til árið áður en Epstein lést í fangelsi árið 2019. Ehnbom er meðal annars þekkt í Svíþjóð fyrir að hefja konur upp í leiðtogahlutverk en hún hefur sjálf reynslu úr bandaríska fjármála- og lyfjaiðnaðinum. Epstein virðist hafa fjármagnað kvenleiðtogaverkefni Ehnbom í Svíþjóð að stórum hluta. Evrópska dagblaðið Politico segir að tölvupóstanir sýni að Ehnbom sendi Epstein myndir af ungum konum sem hún taldi þær „bestu og klárustu“ til þess að hann gæti hitt þær, oft á samkomum á heimili hans í New York. Með myndunum fylgdu oft athugasemdir Ehnbom um útlit þeirra, aldur og hvort hún teldi að þær hentuðu honum. „Lítil, falleg dökkhærð stúlka“, „MJÖG AÐLAÐANDI“, „lítil ljóshærð stúlka í bleikum kjól...hún er mjög sæt finnst mér...ég tek eftir að þú virðist hafa svipaðan smekk,“ var á meðal þess sem Ehnbom lét fylgja með myndum af ungu konunum. Lýstu þakklæti fyrir að fá að hitta Epstein Blaðið segir ekkert liggja fyrir um að Ehnbom hafi bent Epstein á stúlkur undir lögaldri eða að hann hafi misnotað þær konur sem hún benti honum á. Sumar kvennanna hafi verið áfram í samskiptum við Epstein eftir að þær hittu hann með milligöngu Ehnbom. Einhverjar þeirra hafi heimsótt hann sjálfar og að minnsta kosti einni hafi hann boðið í frí til Afríku. Þær virðast hafa kunnað að meta tækifærið að hitta Epstein. Lýstu þær þakklæti í hans garð í skilaboðum. Ehnbom svaraði ekki fyrirspurnum Politico um samskipti hennar við Epstein. Hún skrifaði hins vegar færslu á samfélagsmiðlinum Linkedin að hún væri hneyksluð á þeirri misnotkun sem margar stúlkur hafi orðið fyrir. „Mér býður við að hafa verið í nokkurs konar sambandi við manneskju sem hefur nú, að henni genginni, verið afhjúpuð fyrir athafnir sem er ekki hægt að afsaka,“ skrifaði Ehnbom sem er 81 árs gömul.
Svíþjóð Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Michelle Licata var sextán ára nemandi við Royal Palm Beach High School þegar vinkona hennar sendi henni skilaboð í tíma, skömmu fyrir jól árið 2004. Hún spurði hana hvort hún vildi vinna sér inn auka pening með því að nudda gamla menn. Licata sá fyrir sér að veita mönnum nudd á einhvers konar heilsustofnun eða hjúkrunarheimili og sagði já; hana langaði til að geta gefið öllum í fjölskyldunni sinni smá jólagjöf. Þegar vinkonan sótti Licata einn daginn var áfangastaður þeirra hins vegar hvorki spa eða heimili fyrir aldraða, heldur glæsivilla Jeffrey Epstein við 358 El Brillo Way, á Palm Beach í Flórída. 22. febrúar 2026 20:02 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira
Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Michelle Licata var sextán ára nemandi við Royal Palm Beach High School þegar vinkona hennar sendi henni skilaboð í tíma, skömmu fyrir jól árið 2004. Hún spurði hana hvort hún vildi vinna sér inn auka pening með því að nudda gamla menn. Licata sá fyrir sér að veita mönnum nudd á einhvers konar heilsustofnun eða hjúkrunarheimili og sagði já; hana langaði til að geta gefið öllum í fjölskyldunni sinni smá jólagjöf. Þegar vinkonan sótti Licata einn daginn var áfangastaður þeirra hins vegar hvorki spa eða heimili fyrir aldraða, heldur glæsivilla Jeffrey Epstein við 358 El Brillo Way, á Palm Beach í Flórída. 22. febrúar 2026 20:02