Kynferðisofbeldi

Fréttamynd

„Það er mikið verið að suða“

Börn sem tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla segjast finna fyrir skýru bakslagi í kynjajafnrétti og upplifa töluverða pressu til að uppfylla úr sér gengnar staðalmyndir. Ofbeldi í nánum samböndum er gríðarlega algengt að mati forsvarsmanna Barnaheilla. 

Innlent
Fréttamynd

Lof­orðin sjö – Of­beldi, hvað svo? – Ég lofa

Þegar barn verður fyrir kynferðislegu ofbeldi upplifir það áfall og fer þá af stað varnarviðbragð til að lifa af. Fyrstu viðbrögð við áfalli, eins og ofbeldi, eru gjarnan að flýja eða berjast. Ef barn getur ekki flúið eða barist getur það frosið eða farið í að þóknast til að lifa af.

Skoðun
Fréttamynd

Al­gengt að krafa sé gerð í sam­bandi um að deila stöðugt stað­setningu

Bakslag er í kynjajafnrétti á samfélagsmiðlum og fá kynin afar ólík skilaboð. Stelpur eigi að vera kvenlegar, heimavinnandi og setja sjálfar sig í annað sætið. Strákar eigi að vera sterkir og góð fyrirvinna. Algengt er að gerð sé krafa um að deila staðsetningu með maka og dæmi um að strákar deili nektarmyndum af kærustum með vinum.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hafin í Múlaborgarmáli

Aðalmeðferð í máli ungs manns, sem ákærður er fyrir að nauðga barni á leikskólanum Múlaborg í tvígang, er hafin. Hann var starfsmaður á leikskólanum þegar hann er sagður hafa brotið á barninu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun

Rannsókn á meintu kynferðisbroti og líkamsárás á Akureyri í byrjun mars hefur verið hætt. Talið var að ekki væri hægt að sýna fram á meint brot. Eitt brotanna, gegn kynferðislegri friðhelgi, hefur verið sent til héraðssaksóknara.

Innlent
Fréttamynd

Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóð­leik­húsinu

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona, segir að nauðgun sem hún varð fyrir eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu á árum áður, hafi leitt til þess að hún hafi farið út í gerð hlaðvarpsins Ólínuskjölin. Hún hafi nýverið tekið að sér verkefni sem maðurinn hafi einnig átt að vera í og hann hafi neitað að stíga til hliðar.

Innlent
Fréttamynd

„Dreginn inn í um­ræðu þar sem engar stað­reyndir eða neitt liggja fyrir“

Lögregla hefur fellt niður rannsókn á Sigurði Sindra Magnússyni athafnamanni í tengslum við meint kynferðisbrot á Akureyri. Hann segist ekki myndu óska neinum þess að vera ranglega bendlaður við kynferðisbrot en Sigurður hefur síðasta mánuðinn setið undir aðkasti á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt er að hann sé nauðgari. Hann segist aðeins hafa leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað og því hafi hann verið boðaður í skýrslutöku við upphaf lögreglurannsóknar. Að öðru leyti komi hann ekki nálægt málinu.

Innlent
Fréttamynd

Af­leiðingarnar af syst­kina­broti séu verri en brotið sjálft

Þrjár konur sem allar hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi af bræðrum sínum segja mikilvægt að foreldrar fái fræðslu um systkinabrot og hvernig eigi að taka á þeim. Þær segja viðbrögðin við ofbeldinu og afleiðingarnar af ofbeldinu sem þær urðu fyrir jafnvel verri en ofbeldið sjálft. Tvær voru beittar ofbeldi af eldri bræðrum en sú þriðja, Tinna, af ættleiddum dreng sem var síðar sendur af heimilinu.

Innlent
Fréttamynd

Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti var­lega í að draga á­lyktanir út frá fram­burði drengsins

Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjaness taldi ekki unnt að slá því föstu að Helgi Bjartur Þorvarðarson hefði gerst sekur um háttsemi sem flokka megi sem önnur kynferðismök en samræði, þegar hann braust inn til tíu ára drengs í Hafnarfirði og lagðist upp í rúm til hans. Hann var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni í stað nauðgunar og var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir.

Innlent
Fréttamynd

Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi

Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að brot gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði. Níu mánuðir dómsins eru bundnir skilorði. Hann var ekki sakfelldur fyrir að nauðga drengnum heldur fyrir kynferðislega áreitni í hans garð.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur hlýðir ekki á Jón Þór

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Þver­tekur fyrir nokkur tengsl

Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“.

Erlent
Fréttamynd

Meint kyn­ferðis­brotamál rann­sakað í tví­gang en fellt niður

Meint kynferðisofbeldi gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri var rannsakað í tvígang en fellt niður í bæði skiptin. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að enginn rökstuddur grunur sé um brot gegn barninu. Hann á að hafa starfað í sex vikur á leikskólanum eftir að málið kom upp.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hafin í máli Helga Bjarts

Aðalmeðferð í máli Helga Bjarts Þorvarðarsonar, sem sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði og vændiskaup, hófst í morgun. Hún mun standa yfir í allan dag og ef allt fer samkvæmt áætlun má reikna með að dómur falli innan fjögurra vikna. Allt þinghald í málinu fer fram fyrir luktum dyrum.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sökuðu ekki nauðgun og báðu sak­borning af­sökunar

Starfshættir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru ámælisverðir þegar hún vanrækti að rannsaka nauðgun að mati eftirlitsnefndar. Einstaklingur sakaði lögreglumenn um að hafa vísvitandi spillt fyrir rannsókninni. Lögreglumaður bað sakborning afsökunar þegar hann var loks kallaður til skýrslutöku.

Innlent
Fréttamynd

Gert að rann­saka tvö mál betur en gefa ekkert upp

Embætti Héraðssaksóknara gefur ekkert upp um stöðuna á rannsókn mála tveggja barna á leikskólanum Múlaborg, sem Ríkissaksóknari gerði embættinu að taka til meðferðar á ný. Starfsmaður á leikskólanum hefur verið ákærður fyrir að nauðga einu barni tvívegis.

Innlent
Fréttamynd

Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað máli hinnar áströlsku Nöru Walker á hendur íslenska ríkinu frá dómi. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld og dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. Dómstóllinn taldi kæru hennar ekki byggða á nægilega sterkum grunni og því þyrfti að vísa henni frá dóminum.

Innlent
Fréttamynd

Spacey sleppur við dóm­salinn með sátt við þrjá menn

Leikarinn Kevin Spacey hefur gert sátt við þrjá menn sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi yfir margra ára tímabil. Málið átti að fara fyrir dómara í Lundúnum síðar á þessu ári en ekki verður af því. Fjöldi karlmanna steig fram í MeToo-bylgjunni og sakaði Spacey um kynferðisbrot en málin hafa ýmist verið felld niður eða hann sýknaður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita sam­þykki

Hæstiréttur hefur ómerkt dóms Landsréttar yfir manni á þrítugsaldri, sem var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga þrettán ára stúlku og áreita aðra stúlku kynferðislega. Hæstiréttur vísaði til þess að óhjákvæmilegt væri að Landsréttur mæti sjálfstætt hvort það leiddi af þroska brotaþola sem og atvikum öðrum hvort hún hafi verið bær til þess að veita gilt samþykki fyrir samræði við manninn. Landsréttur þarf því að taka málið fyrir á ný.

Innlent