Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. janúar 2026 06:48 Trump og Carney þegar betur fór á með þeim. Getty/Anna Moneymaker Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt.
Trump ávarpar Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og segist vera að draga boð sitt til baka, þess efnis að Kanada fái sæti í stjórninni. Stjórn leiðtoga, segir hann, sem sé sú virðingarverðasta sem nokkurn tímann hafi verið mynduð. Carney hafði áður sagt að Kanada myndi þiggja sætið, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Kanada myndi til að mynda ekki greiða milljarð Bandaríkjadala fyrir varanlegt sæti, eins og Trump hefur lagt upp með, og þá vildu Kanadamenn ræða verksvið stjórnarinnar og útfærsluatriði. Leiða má líkur að því að ákvörðun Trump um að draga boðið til baka tengist ræðu Carney á World Economic Forum í Davos í vikunni, sem vakti athygli út um allan heim og var lofuð fyrir raunsanna lýsingu á stöðu heimsmálanna á tímum Donald Trump, án þess þó að minnst væri á forsetann. Trump hefur á sama tíma verið gagrýndur fyrir miður góða frammistöðu í Davos, þar sem hann óð úr einu í annað í langri og þreytulegri ræðu sinni. Bretar, Frakkar og Ítalir eru meðal þeirra þjóða sem hafa afþakkað boð Trump í bili, enda virðist stofnun stjórnarinnar ekki lengur snúast um frið og uppbyggingu Gasa, heldur tilraun til að grafa undan Sameinuðu þjóðunum.
Bandaríkin Kanada Donald Trump Mest lesið Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira