„Það verða fjöldagjaldþrot“ Samúel Karl Ólason skrifar 26. október 2025 13:06 Már Wolfgang Mixa og Páll Pálsson voru ekki jafn jákvæðir í Sprengisandi og myndin gefur til kynna. Bylgjan Útlitið er dökkt á húsnæðismarkaði eftir vaxtadóminn svokallaða. Það segja þeir Páll Pálsson, fasteignasali, og Már Wolfgang Mixa, dósent við Háskóla Íslands, sem voru í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þeir vaxtadóminn og áhrif hans á fasteignamarkaðinn, húsnæðisverð og lánskjör almennings. „
Þetta getur verið blessun í dulargervi,“ sagði Páll. Hann sagði dóminn geta verið upphafið af því að verðtryggðu lánin hverfi og það geti sömuleiðis verið jákvætt eða neikvætt. Aðallega neikvætt samt. Páll sagði að eftir að hafa verið í samskiptum við þá banka sem hann starfi með sjái hann fyrir sér slæma sviðsmynd. Sjá einnig: Telur neytendur hafa unnið pyrrosarsigur í vaxtamálinu Hann sagði að í fyrra hafi nærri því sjötíu prósent allra nýrra lána verið verðtryggð og á þessu ári sé hlutfallið tæplega sextíu prósent. Ef að samdráttur á nýjum lánum og nýjum kaupsamningum yrði í einhverju samhengi við þessi hlutföll myndi það hafa mjög neikvæð áhrif. „Nú bara verð ég pínu dramatískur, kannski neikvæður, ég veit það ekki,“ sagði Páll. Þá sagði hann að fjöldagjaldþrot myndi eiga sér stað í byggingabransanum, bygging nýrra íbúða yrði stöðvuð og það myndi hafa gífurlega mikil afleidd áhrif á byggingavöruverslanir, arkitekta og ýmsa aðra geira. Margir myndu missa vinnuna og það myndi hafa bein áhrif inn í bankakerfið í formi vanskila og gjaldþrota. „Þetta mun hafa gríðarleg áhrif.“ Kristján Kristjánsson, þáttastjórnandi, spurði hvort forsendur fyrir þessari slæmu sviðsmynd væru þær að bankarnir væru hættir að veita verðtryggð lán nema til fyrstu kaupenda. „Ef þú kaupir 65 milljóna króna íbúð og ætlar að biðja um áttatíu prósenta lán, miðað við forsendurnar á þessu „verðtryggða“ láni frá Landsbankanum, þarftu að hafa 1,7, 1,8 milljónir í laun til að standast það greiðslumat,“ sagði Páll. „Þannig að þetta er ekki verðtryggt lán. Þetta er ekki vara sem raunverulega er í boði. Páll sagðist ekki þekkja neinn sem væri að kaupa sér fyrstu íbúð, þar sem meðalaldurinn væri kringum þrítugt, sem væri með svona tekjur. Hann sagði hægt að fyrirbyggja þetta enda væri vandamálið manngert. Hann vissi til þess að verið væri að leita lausna. Í engu stuði fyrir jákvæðni Þegar Páll lauk máli sínu bað hann Má um að vera jákvæðan, sem sagðist í engu stuði til þess. Hann sagðist vilja benda á að í nýjasta útspili Landsbankans væri búið að lækka líftíma lána úr 25 árum í tuttugu og eingöngu væru jafnar afborganir í boði. Hann sagðist hafa sett upp reiknidæmi sem sýndi að aukning á greiðslubyrði milli tuttugu og fimm ára lána og tuttugu ára væri rúmar fjörutíu þúsund krónur. „Það munar um minna fyrir mörg íslensk heimili.“ Þá sagði hann muninn á því að vera með 25 ára jafngreiðslulán og tuttugu ára lán með jöfnum afborgunum væri 111 þúsund krónur á mánuði. „Þannig að kröfurnar á fyrsta árinu til að standast greiðslubyrði hafa snar aukist við þetta.“ Már gagnrýndi einnig umræðu um meiri fyrirsjáanleika í vaxtakjörum. „Ég spyr. Er það einhver fyrirsjáanleiki að það sé einhver fimm manna nefnd í einhverri stofnun á Íslandi sem ákveði vaxtakjör þín?“ Hann sagði þau vaxtakjör taka mið af vikubundnum innlánum fjármálastofnana. Þar væru augljóslega skammtímavextir látnir gilda yfir langtímalán. „Talandi um séríslensk fyrirbrigði. Í mínum huga er þetta algjörlega galið.“ Hann sagði stefna í miklu meira flökt á vaxtakjörum íslenskra heimila en hjá íslenska ríkinu. Mikil óvissa ríkti á markaði húsnæðislána og henni þyrfti að eyða. Hlusta má á frekari samræður þeirra Más og Páls við Kristján í spilaranum hér að neðan.
Vaxtamálið Húsnæðismál Fjármálafyrirtæki Lánamál Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira