Húsnæðismál

Húsnæðismál

Fréttamynd

Klára náms­lánið eða greiða inn á húsnæðislánið?

33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Geir­dís geti leitað á tjald­svæði og greitt markaðs­verð

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða sem sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar núverandi meirihluti borgarinnar rifti afnotasamningi. Samtök hjólabúa undirrituðu samninginn ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, um landspildu í Gufunesi rétt fyrir kosningar. 

Innlent
Fréttamynd

„Okkur er gert að vera á­fram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“

Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook.

Innlent
Fréttamynd

Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga raf­virkja

Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir sjaldan hafa verið auð­veldara að vera fyrsti kaupandi

Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr.

Neytendur
Fréttamynd

Fyrstu fast­eigna­kaup sjaldan verið að­gengi­legri

Mikið er talað um að ungt fólk eigi sífellt erfiðara með að kaupa sína fyrstu fasteign. En öfugt við það sem margir halda, þá hefur orðið mikil breyting til batnaðar í þeim efnum á síðustu árum. Stjórnvöld, fjármálastofnanir og jafnvel einkaaðilar hafa komið á fót fjölmörgum úrræðum sem gera fyrstu kaupendum mun auðveldara að komast inn á fasteignamarkaðinn en oft áður.

Skoðun
Fréttamynd

Vara­seðla­banka­stjóri segir fólki að grafa upp plast­greiðslu­kortin

Ný tæknilausn mun gera fólki kleift að kaupa vörur fyrir fimmtíu þúsund krónur í verslun þrátt fyrir að nettenging eða greiðslukortakerfi liggi niðri. Varaleiðin mun ekki virka með snertilausum greiðslum í fyrstu og því þarf fólk sem hefur lengi skilið kortið eftir heima fljótlega að taka það með sér til að búa sig undir kerfistruflanir framtíðarinnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hjalla­stefnan fær loksins hús­næði

Hjallastefnan stefnir á að opna nýjan leik- og grunnskóla fyrir fjögur hundruð börn við Nauthólsveg í Reykjavík. Kennt verður upp í sjöunda bekk á grunnskólastigi. Skólinn mun taka við af núverandi starfsemi Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um mitt ár 2027.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þór­katla slökkvi vonar­neistann með nýjum samningi

Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Sund­laugar opnar til mið­nættis og ótak­mörkuð bíla­stæði

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í dag. Hún segir starfinu fylgja mikil ábyrgð og að hún muni skera niður í stjórnkerfinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Í tillögum nýs meirihluta er gert ráð fyrir að lengja opnunartíma sundlauga um helgar á sumrin til miðnættis og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. 

Innlent
Fréttamynd

Fast­eigna­mat lækkar að raun­virði

Heildarmat fasteigna fyrir árið 2027 nemur 17,8 billjónum króna og hækkar um 2,1 prósent á milli ára. Fasteignamat íbúðareigna hækkar um 1,2 prósent á milli ára, en fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8 prósent. Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 4,7 prósent á milli ára. Allar tegundir húsnæðis lækka þannig að raunvirði. Um skýra breytingu er að ræða miðað við síðustu ár.

Innlent
Fréttamynd

Hjólhýsabyggð færist í Gufu­nes þrátt fyrir að­finnslur

Stefnt er að því að hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist í Gufunes. Reykjavíkurborg og forsvarsmenn óstofnaðs félags, Samtaka hjólabúa, hafa skrifað undir afnotasamning þess efnis. Um er að ræða 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi sem er á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.

Innlent
Fréttamynd

Týnda kosningamálið

Á laugardag verður gengið að kjörborðinu í sveitarfélögum landsins og flokkar keppast nú um athygli fólks í raunheimum jafnt sem á samfélagsmiðlum. Í slíku ati fara málefnin stundum halloka og að þessu sinni fer óþægilega lítið fyrir efnislegri umræðu um eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaganna sem er húsnæðismál. Húsnæði hefur grundvallaráhrif á lífsgæði og kjör fólks og hefur verið helsti drifkraftur verðbólgunnar. Þannig snerta húsnæðismál efnahagslífið eins og það leggur sig, ekki aðeins í dag heldur líka til framtíðar. Aðgerðaleysi í dag er verðbólga framtíðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi

Kæru­nefnd hú­samála hefur gert leigu­sala, sem vildi ráð­stafa tryggingafé til við­gerðar á parketi vegna skemmda eftir pinna­hæla, að endur­greiða fyrr­verandi leigj­endum sínum tæpan helming tryggingarinnar með vöxtum.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina

Kærunefnd húsamála hafnaði nýlega kröfu leigjanda um að fyrrverandi leigusali hans myndi endurgreiða honum leigu og um að hann myndi greiða honum bætur vegna muna í hans eigu sem leigusalinn fargaði. Leigusalinn fékk ítrekaðar kvartanir vegna leigjandans, meðal annars vegna hegðunar og umgengni í sameiginlegu rými. Þar á hann til dæmis að hafa gengið um nakinn. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta á náttúru­lega ekki að gerast“

Í gær, verkalýðsdaginn 1. maí, voru starfsmenn starfandi við uppbyggingu íbúðarblokka vestan við Hlíðarenda, á Valsreitnum svokallaða. Íbúðirnar eru reistar á vegum Bjargs, húsnæðissjálfseignarstofnunar sem ætlað er að reisa íbúðir án hagnaðarmarkmiða. 

Innlent