Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags, segir í ítarlegri grein sem birtist á Innherja í morgun að sveitarfélögin hafi mun öflugri tæki til að hafa áhrif á verðbólgu en felast aðeins í því að halda aftur af hækkunum gjaldskráa. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti nýlega að stefna að því að almennar gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5 prósent á næsta ári.
Hann bendir á að kostnaðurinn í tilteknu reiknidæmi við uppbyggingu í Reykjavík – þar er tekið tillit til kostnaðar á borð við byggingarrétt, gatnagerðargjöld og fjármagnsgjöld – jafngildi um 45 prósentum af meðalsöluverði nýbygginga í höfuðborginni undanfarna mánuði, sem hefur verið um 982 þúsund krónur á fermetra.
Áhrif húsnæðismarkaðarins á verðbólgu hafa verið mikil á undanförnum árum. Útreikningar sem Sigurður byggir á gögnum Hagstofunnar sýna að húsnæðisliðurinn einn hafi skýrt um helming verðbólgunnar frá ársbyrjun 2015. Í 129 af 141 mánaðarlegri mælingu frá þeim tíma hefur árshækkun húsnæðis verið meiri en annarra liða neysluvísitölunnar.
Hann telur takmarkað framboð byggingarhæfra lóða meðal þeirra þátta sem þrýsta upp húsnæðiskostnaði, veikt samkeppni um byggingarland og hækkað verð byggingarréttar, auk þess sem langur undirbúningstími auki fjármagnskostnað verulega.
„Lóðaskortur er ekki náttúrulögmál. Framboð byggingarhæfra lóða ræðst að verulegu leyti af skipulagsákvörðunum og undirbúningi sveitarfélaganna,“ skrifar framkvæmdastjóri Aflvaka. Það er félag sem meðal annars fjárfestarnir Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson standa að baki og áformar uppbyggingu fimm þúsund íbúða lífgæðakjarna fyrir 60 ára og eldri í Kópavogi.
Verulega hefur hægt að undanförnu á íbúðauppbyggingu. Samkvæmt nýjustu talningu HMS hófust framkvæmdir við 772 íbúðir á sex mánaða tímabili fram í september, sem er 56 prósentum minna en á sex mánuðunum þar á undan. Stofnunin gerir nú ráð fyrir 2.100 til 2.600 fullbúnum íbúðum á næsta ári, langt undir metinni þörf fyrir um fjögur þúsund íbúðir árlega.
Samsetning nýbygginga endurspeglar, að mati Sigurðar, illa eftirspurnina. Aðeins um 23 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru 80 fermetrar eða minni, samanborið við meira en helming í Osló, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Á sama tíma sýna sölutölur að minni og ódýrari íbúðir gangi mun hraðar út en stærri nýbyggingar.
Í greininni segir hann þörf á því að auka sveigjanleika vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins, tryggt verði meira framboð byggingarhæfra lóða, endurskoða gjöld og kvaðir og stytta tímann frá skipulagsákvörðun þar til íbúð er afhent. Slíkar aðgerðir geti lækkað uppbyggingarkostnað, aukið framboð íbúða og þannig dregið úr verðbólguþrýstingi til lengri tíma.