Ólöf endurráðin safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. september 2020 16:33 Ólöf Kristín Sigurðardóttir hóf störf hjá Listasafni Reykjavíkur árið 2015.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir hefur verið endurráðin til fimm ára sem forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Undir hennar stjórn hefur tekist að styrkja hlutverk Listasafns Reykjavíkur sem öflugan og breiðan vettvang lista,“ segir Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs, í rökstuðningi fyrir endurráðningu Ólafar. Enn fremur hafi Ólöf á undanförnum árum byggt upp öflugt teymi starfsmanna og saman hafi þau óhikað farið nýjar og ótroðnar slóðir. Undir hennar stjórn hafi hvert aðsóknarmetið af öðru verið slegið og hún hafi sérstaklega lagt sig fram um að sinna nærsamfélaginu og höfða til íslenskra gesta. Ólöf Kristín hóf störf haustið 2015 og var þá valin úr hópi níu umsækjenda. Að fimm árum loknum er sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs heimilt að framlengja ráðningu safnstjóra einu sinni til næstu fimm ára að höfðu samráði við menningar-, íþrótta- og tómstundaráð. Ráðið lét bóka á fundi sínum þann 14. september sl. að það fagnaði endurráðningu Ólafar Kristínar enda hefði hún átt ákaflega farsælan feril.
Reykjavík Myndlist Menning Vistaskipti Söfn Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira