Franski boltinn

Fréttamynd

„Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“

Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain, hlakkar til þess að takast á við Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fyrri leikur liðanna fer fram í París.

Fótbolti
Fréttamynd

Hákon á sínum stað er Lille vann mikil­vægan sigur

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Hákon Arnar Haraldsson, var í byrjunarliði Lille sem vann mikilvægan sigur á Paris í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-0 sigur Lille, liðið er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. 

Fótbolti
Fréttamynd

Hákon lagði upp í öruggum sigri

Lille fór upp í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-0 útisigur á Toulouse síðdegis. Hákon Arnar Haraldsson lagði sitt að mörkum til sigursins.

Fótbolti
Fréttamynd

Cantona spreytir sig á ís­lenskunni

Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona hefur verið að störfum á Ströndum undanfarnar vikur við kvikmyndagerð. Íslenskukunnáttan virðist aðeins snúast fyrir leikaranum.

Fótbolti
Fréttamynd

Hákon reimaði á sig markaskóna í kvöld

Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrsta mark Lille í 3-0 sigri liðsins gegn Lens í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Með sigrinum saxar Lille á Lens í öðru sæti deildarinnar. 

Fótbolti
Fréttamynd

Há­kon fagnaði dýr­mætum sigri í Marseil­le

Hákon Arnar Haraldsson var á sínum stað í liði Lille þegar það vann dísætan 2-1 útisigur gegn Marseille í dag. Lille minnkaði þar með forskot Marseille í tvö stig í baráttunni um 3. sæti frönsku 1. deildarinnar í fótbolta.

Fótbolti
Fréttamynd

Dramatík hjá Hákoni

Hákon Arnar Haraldsson og félagar hans í Lille unnu mikilvægan og dramatískan 1-0 sigur á Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Sagði starfi sínu lausu en fær ekki að fara

Allt logar innan herbúða franska félagsins Marseille. Þjálfarinn var rekinn og yfirmaður íþróttamála sagði starfi sínu lausu en eigandi félagsins segir að hann muni halda áfram í starfinu það sem eftir lifir tímabils.

Fótbolti