Áskorun

50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Því miður hættir okkur foreldrum til að vilja svo mikið leysa úr og létta á lífi barna okkar, að í raun erum við að skemma fyrir þeim og koma í veg fyrir tækifærin þeirra til að vaxa, þroskast og læra að taka ábyrgð á sjálfum sér.
Því miður hættir okkur foreldrum til að vilja svo mikið leysa úr og létta á lífi barna okkar, að í raun erum við að skemma fyrir þeim og koma í veg fyrir tækifærin þeirra til að vaxa, þroskast og læra að taka ábyrgð á sjálfum sér. Vísir/Getty

Jafn ótrúlega og það hljómar, rennur starfslýsingin okkar sem foreldri út á tíma. Ekki vegna þess að við hættum að vera foreldrar; vissulega höldum við því hlutverki áfram.

En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti lengi telja er starfshlutverk sem einfaldlega á að renna sitt skeið.

Fyrir hönd barna okkar.

Og okkar sjálfra.

Vissulega hættir þetta svo sem ekki um tvítugt – ólíkt því sem var í den. Því í dag má gera ráð fyrir að þegar börnin okkar verða tuttugu og eitthvað ára búi þau enn í herberginu sínu framan af og þegar þau flytja að heiman mæta þau þó reglulega í heimsókn með óhreina tauið og tóman maga.

Við höldum því áfram að afgreiða.

Föttum varla að þar með er gamla fjölskylduhreiðrið búið að breytast í þægilega þjónustumiðstöð með ókeypis Wifi, fullan ísskáp og sólarhringsneyðarþjónustu.

Rétta þróunin er hins vegar þessi:

Fyrir hönd barna okkar – og okkar sjálfra – eigum við að hætta að stjórna eða vera þjónustumiðstöð og læra að verða bakhjarlar.

Sem þýðir að okkar nýja hlutverk er að standa á hliðarlínunni og klappa. Ekki að hlaupa inn á völlinn og taka vítaspyrnuna.

Með öðrum orðum: Við þurfum að stíga skref til baka – til að gefa börnunum okkar pláss til að standa í lappirnar sjálf.

Hvers vegna er þetta svona mikilvægt?

Jú, vegna þess að rannsóknir sýna að ef við látum ekki af gamla starfshlutverkinu okkar erum við sjálf að koma í veg fyrir að börnin okkar fái tækifæri til að vaxa og þroskast.

Dæmi:

#1: Rannsóknir í þroskasálfræði sýna að seigla og sjálfstraust byggjast á því að takast á við afleiðingar eigin gjörða.

Þegar foreldrar hlaupa alltaf til – hvort sem það er að greiða niður yfirdráttinn, skipuleggja tíma hjá lækninum eða taka að sér daglegan þrifnað – er verið að senda lúmsk skilaboð: „Ég treysti þér ekki til að sjá um þetta sjálfur.“

#2: Sálfræðingurinn Jeffrey Bernstein segir stærstu gildru foreldra með uppkomin börn felast í stjórnsemi, ráðleggingum og áhyggjum. Aðlögun foreldra felist í að hætta að reyna að laga eða létta líf þeirra, en læra þess í stað að verða bakhjarl.

Er þetta auðveld breyting?

Svarið er: Neihei. Hún er þræl-erfið meira að segja.

En hér eru nokkur ráð sem geta gefið hugmyndir – öll mun flóknari í framkvæmd en virðast við fyrstu sýn.

#1; Hættu að bjóða lausnir. Spurðu: Hvað ætlar þú að gera í þessu?

#2; Settu húsnæðisreglur fyrir fullorðin börn sem búa enn heima: Það gerir þeim gott að taka þátt í rekstrinum, þrifum og kaupum á matnum. Þú ert ekki hótelhaldari.

#3: Settu þér tilfinningaleg mörk. Þegar börnin okkar eru orðin fullorðin er það ekki okkar að hafa áhyggjur af lífi þeirra eða liggja andvaka yfir mistökum 25 ára einstaklings. Þau þurfa að læra að bera ábyrgð á sjálfum sér.

50+

Tengdar fréttir

50+: Það má segja Nei við barnapössun

Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun.

Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur

Við erum mögulega að stíga inn á mjög hættulegt svæði. Eldfimt. Óþægilegt. Jafnvel svo viðkvæmt umræðuefni að 50+ pör eiga erfitt með umræðuna.

50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli

Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.