Lífið

Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni

Jakob Bjarnar skrifar
Tolli Morthens fer á kostum Í bóli Bjarnars sem verður til dagskrár á morgun.
Tolli Morthens fer á kostum Í bóli Bjarnars sem verður til dagskrár á morgun. vísir/anton brink

Tolli Morthens myndlistarmaður er næsti gestur Í bóli Bjarnars sem verður frumflutt á morgun klukkan níu á Bylgjunni en má þá nálgast á Vísi, Stöð 2 plús og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir að hljómsveit hans Íkarus kom fram á sögufrægum tónleikum í Laugardalshöll. Platan The Boys from Chicago var útskriftarverkefni hans úr Myndlistar- og handíðaskólanum. Þar dró hann Megas á flot en hann hafði þá verið í löngu hléi. 

Framlag Megasar til plötunnar var ríkulegt, eiginlega of mikið því það kom niður á skurði plötunnar. Tolli kennir sjálfum sér um, hann hafi ekki getað sett Megasi mörk.

Tolli dró Megas á flot þegar hann stofnaði Íkarus og Megas mætti klár í slaginn með bing af lögum.vísir/vilhelm

„En þetta var mjög skemmtilegt. Megas var á þessum tíma edrú eða svona semi-edrú, hann hefur kannski fengið sér jónu og jónu en hann var mjög skemmtilegur í samskiptum. Það var húmor og ekkert vesen á honum. Hann var þá í sambúð með ágætri konu, var með börn, fjölskyldumaður á þessum tíma og mjög frjór. Þannig að það var auðvelt að hafa gaman af honum. En ótrúlega sérvitur maður.“

Hvernig þá?

„Ég bjó með honum um tíma í kommúnu hérna í bænum og þá var hann ekki á eins góðum stað. Þetta er áður en Megasardæmið kemur til og var þegar hann var að vinna að plötunni Drög að sjálfsmorði með tónleikunum þarna í Hamrahlíð. Og þá var óreglan mikil, hann gerði á sig og lá bara í stigagöngum alveg ósjálfbjarga. Bara svakaleg verkun á honum. Og inni í herbergi sem hann var í var hann ekki næs. En skrifborðið, þar sem hann skrifar nóturnar og færir til bókar texta sem hann er að vinna, var eins og skrifborð hjá skurðlækni. Það var svoleiðis 100 prósent allt upp á tíu. Alveg sama hvaða ástand var á honum. Hann var alltaf alveg skýr þarna.“

Megas lést á þessu ári en hann skilur eftir sig geypilegt magn texta og tónlistar.


Tengdar fréttir

Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför

Magnús Þór Jónsson (1945–2026) eða Megas var jarðsunginn í fallegri og áhrifaríkri athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng en fjöldi listamanna kom fram við athöfnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.