Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. október 2026 15:33 Mæðgurnar Victoria Rán og Ásdís Rán sátu fyrir saman á forsíðu búlgarska Glamour fyrir októbermánuð. Mæðgurnar Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Victoria Rán Garðarsdóttir sitja fyrir saman á nýjustu forsíðu búlgarskrar útgáfu tímaritsins Glamour. Ásdís er glöð yfir því að geta deila þessari reynslu með dótturinni áður en hún sest í helgan stein frá fyrirsætustörfum.
Ásdís greinir frá tíðindunum á Fésbókarsíðu sinni og birtir nokkrar myndir úr tímaritinu. „Nýjasta forsíða mín fyrir Glamour Magazine og ég var svo heppin að deila þessu einstaka augnabliki með fallegu dóttur minni, Victoriu Rán. Minning sem við munum varðveita að eilífu,“ skrifar Ásdís. „Fyrir Búlgörum hefur Ásdís Rán lengi verið ísdrottningin, töfrandi, sjálfstæð og alltaf tilbúin að koma á óvart. Á fyrstu forsíðu sinni með dótturinni Victoriu sýnir hún nýja hlið á sér: stolta móður sem fylgist spennt með dóttur sinni feta sína eigin slóð,“ segir um Ásdísi í viðtalinu en mæðgurnar ræddu við blaðamann um tíma sinn í Búlgaríu, samband þeirra og feril. Frægðin kenndi dótturinni að vera varkár „Ég er svo glöð að fá tækifæri til að geta deilt forsíðunni með dóttur minni áður en ég hætti loksins fyrirsætustörfum - þó ég hafi reyndar tilkynnt starfslok mín nokkrum sinnum áður þannig að enginn ætti að taka því of alvarlega,“ sagði Ásdís í viðtalinu. Blaðamaður Glamour spurði Victoriu út í það hvernig hefði verið að alast upp með fræga foreldra, móður sem var fyrirsæta og föður sem var atvinnumaður í knattspyrnu. „Það að alast upp hjá þekktum foreldrum hefur kennt mér margt. Ég hef umgengist svo margt fólk frá unga aldri að ég varð mjög góð í að lesa andlit og skilja ásetning fólks,“ sagði Victoria. Móðir hennar hefði kennt henni að vera örugg í eigin skinni. „Að eiga tvö fræg foreldri kenndi mér á sama tíma að vera varkár með einkalíf mitt. Ég lærði það mjög ung að ég ætti ekki að deila öllum persónulegum smáatriðum, jafnvel með fólki sem ég lít á sem nána vini því þú veist aldrei hvar upplýsingarnar gætu endað eða hvort einhver gæti notfært sér það síðar,“ sagði hún.
Tíska og hönnun Búlgaría Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira