Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 20:57 Hákon Arnar Haraldsson er með Lille á toppi frönsku 1. deildarinnar en það gæti breyst á morgun. Getty/Jean Catuffe Franski stórmiðillinn L'Equipe lýsir 1-0 útisigri Lille gegn Toulouse í kvöld sem hreinu og kláru ráni. Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille kvarta þó varla og eru nú á toppi frönsku 1. deildarinnar í fótbolta.
Japaninn Ayase Ueda, sem mætti Íslandi í vináttulandsleik í sumar og skoraði tvö mörk gegn Túnis á HM, þreytti frumraun sína með Lille í kvöld eftir að hafa verið fenginn frá Feyenoord. Hann skoraði strax í fyrsta leiknum, á 73. mínútu, og það reyndist sigurmarkið. Samkvæmt tölfræði Sofascore voru vænt mörk (e. xG) Lille 1,06 í leiknum en vænt mörk heimamanna 3,41 svo það er greinilega margt til í því að um rán hafi verið að ræða. Eftir jafnteflið við PSG í síðustu viku, þar sem Hákon skoraði frábært mark, og sigur gegn Angers í fyrstu umferð eru Lille-menn nú með sjö stig á toppi deildarinnar. Önnur lið eiga hins vegar eftir að spila í 3. umferðinni en aðeins Monaco getur gert meira en jafnað Lille að stigum. Monaco-menn unnu fyrstu tvo leiki sína og sækja PSG heim annað kvöld. Markalaust hjá Orra og félögum Á Spáni urðu Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við Celta Vigo. Orri var í byrjunarliði heimamanna en var skipt af velli eftir 70 mínútna leik þegar Goncalo Guedes kom inná. Real Sociedad fer nokkuð rólega af stað og er nú með fjögur stig eftir fjóra leiki. Tómas fagnaði eftir grannaslag Í skosku úrvalsdeildinni var grannaslagur á milli Hibernian og Hearts. Tómas Bent Magnússon var á varamannabekknum hjá Hearts þar til á 71. mínútu en þá var staðan þegar orðin 3-1 fyrir Hearts og það urðu lokatölurnar. Josh Mulligan togar í Tómas Bent Magnússon í grannaslagnum í Edinborg í kvöld.Getty/Mark Scates Tómas og félagar, sem voru á útivelli, voru manni fleiri frá 62. mínútu eftir að Jack Iredale fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt, skömmu eftir að Hibernian hafði minnkað muninn í 2-1. Hearts er með níu stig eftir fjóra leiki en Hibernian sex stig. Viktor Bjarki snemma inná en ekki með í látunum Í Danmörku var Viktor Bjarki Daðason ekki í byrjunarliði FCK í stórleik gegn Nordsjælland en hann fékk að koma inná strax á 35. mínútu, þegar Andreas Cornelius meiddist. Þá var staðan orðin 2-0 fyrir FCK og það urðu líka lokatölur leiksins. Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekk FCK. Miklar ryskingar urðu eftir um klukkutíma leik og á endanum hlutu þrír leikmenn gult spjald, og einn úr starfsliði FCK rautt spjald, en Viktor Bjarki skipti sér ekkert af þessum látum. Eftir sigurinn er FCK á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar með 15 stig, tveimur stigum fyrir ofan Nordsjælland, Bröndby og Viborg, og einu stigi fyrir ofan Midtjylland sem er í 2. sæti.
Franski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira