Fótbolti

Katla tryggði Fiorentina sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katla Tryggvadóttir skoraði mikilvægt mark í kvöld.
Katla Tryggvadóttir skoraði mikilvægt mark í kvöld. Getty/Pat Elmont

Íslenska landsliðskonan Katla Tryggvadóttir var hetja Fiorentina í ítölsku deildinni í dag.

Fiorentina vann þá 2-1 útisigur á Parma.

Katla skoraði sigurmark Fiorentina á 55. mínútu eftir að heimastúlkur í Parma höfðu komist yfir á 28. mínútu.

Emma Severini skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Þetta var fyrsta deildarmark Kötlu á tímabilinu en hún skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum á síðustu leiktíð.

Katla kom mjög vel inn í íslenska landsliðið í síðasta glugga og skoraði þá eitt marka liðsins í sigri á Króatíu á Laugardalsvellinum. Hún tók skotskóna greinilega með sér aftur út til Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×