Danmörk

Danmörk

Höfuðborg: Kaupmannahöfn. Mannfjöldi: 6,0 milljónir (2025). Flatarmál: 43.094 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Til­búnir til að sprengja flug­brautir á Græn­landi

Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gengst við kókaín­n­eyslu rétt fyrir kosningar

Leiðtogi Frjálslynda bandalagsins í Danmörku viðurkennir að hann hafi neytt kókaíns eftir að hann tók forystu flokksins. Hann mælist nú þriðji stærsti flokkurinn í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í næstu viku.

Erlent
Fréttamynd

„Þið vitið full­kom­lega hvað er í pakkanum“

„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, var hér oft í veiði og þekkti umræðuna hér vel.

Skoðun
Fréttamynd

Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu

Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðar­við­ræður“

Talsmaður rekstraraðila veitingahúsa segir svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lensk hjón búa um­kringd öryggis­vörðum

Snorri Sigurðsson og Kolbrún Anna Örlygsdóttir bjuggu ásamt börnum sínum á Hvanneyri þegar þau ákváðu að taka sér ársleyfi fyrir 15 árum af því að Snorra langaði til Danmerkur í endurmenntun. Þar leið fjölskyldunni vel, Snorri endurmenntaði sig við Háskólann í Árósum, Kolbrún fékk vinnu og krakkarnir undu sér vel. Þegar árið var á enda vildi Snorri heim, en ekki Kolla. Þau héldu atkvæðagreiðslu við eldhúsborðið heima - sem Snorri tapaði.

Lífið
Fréttamynd

Segist ætla senda spítalaskip til Græn­lands

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu.

Erlent
Fréttamynd

Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá

Sepp Piontek, fyrrum landsliðsþjálfari Danmerkur, er látinn. Undir hans stjórn frá 1979-90 umbreyttist danska landsliðið og fyrir Dönum er þetta ein mesta goðsögn í þeirra knattspyrnusögu.

Fótbolti
Fréttamynd

Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið

„Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn.

Lífið
Fréttamynd

Telur Trump enn girnast Græn­land

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump.

Erlent
Fréttamynd

Fjölga verslunum í Danaveldinu

66°Norður opnaði nýja verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Um er að ræða svokallað archive-verslun þar sem hægt er að festa kaup flíkum frá fyrri vörulínum.

Neytendur