Albanía

Albanía

Höfuðborg: Tírana. Mannfjöldi: 2,8 milljónir (2025). Flatarmál: 28.748 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Sveppamorðingi fær enga reynslu­lausn

Þrír dómarar við áfrýjunardómstól Viktoríuríkis í Ástralíu vísuðu í dag frá áfrýjun Erin Patterson, ástralska sveppamorðingjans svokallaða, og þyngdu refsingu hennar með því að fjarlægja möguleikann á því að hún yrði einhvern tímann látin laus úr fangelsi.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fjöru­tíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins

Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 lauk heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra (HOF) afgreiðslu á 271 verkbeiðni um fylgd eða brottvísun úr landi. Flest mál varða einstaklinga í ólögmætri dvöl og þar á eftir fangaflutninga eða framsal. Fjörutíu var fylgt úr landi á fyrstu níu mánuðum ársins sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms.

Innlent
Fréttamynd

Verð­lag og ó­vissa leiða til ó­eirða í Evrópu

Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í evrópskum borgum í Frakklandi, Ítalíu og í Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.

Erlent
Fréttamynd

„Margir staðir og margir sak­borningar“

Hið minnsta fimmtán manns eru sakborningar í þeim nítján málum sem tengjast skipulögðum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar. Lögreglan fyrir norðan hefur lagt hald á kannabis í kílóavís og hafa fleiri en hundrað rannsóknarúrskurðir verið kveðnir.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar meðal sak­borninga en enginn í varð­haldi

Rannsókn lögreglu á meintum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar er enn í fullum gangi að sögn rannsóknarlögreglumanns sem sér enn ekki fyrir endann á málinu. Íslenskir ríkisborgarar eru meðal sakborninga en fjórum sakborningum hefur verið vísað til Albaníu. Á sumum stöðum hafi kannabisframleiðsla staðið yfir í nokkur ár.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að bragð­bæta ban­eitruðu mál­tíðina

Áströlsk kona sem er sökuð um að hafa myrt skyldmenni sín með baneitruðum sveppum viðurkenndi fyrir dómi að villtir sveppir kynnu að hafa verið í banvænni máltíð sem hún gaf þeim. Hún hefði bætt þurrkuðum sveppum út í réttinn vegna þess að hann hefði verið of bragðlaus.

Erlent
Fréttamynd

Segir sveppa­eitrunina hafa verið „hörmu­legt ó­happ“

Verjendur ástralskrar konu sem er sökuð um að hafa drepið tengdafjölskyldu sína með eitruðum sveppum segja að hún muni halda því fram að það hafi verið „hörmulegt óhapp“. Réttarhöld yfir konunni hófust í dag en hún er ákærð fyrir þrjú morð og tilraun til manndráps.

Erlent
Fréttamynd

Einn helsti rit­höfundur Albaníu er allur

Albanski rithöfundurinn Ismail Kadare er látinn. Hann er fæddur 1936 og lést 1. júlí á þessu ári. Kadare hefur verið talinn eitt helsta skáld og hugsuður 20. og 21. aldarinnar, en hann hefur barist mjög gegn alræði í skrifum sínum.

Erlent
Fréttamynd

12 tonn af sveppum í hverri viku frá Flúðasveppum

Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá.

Innlent