Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júlí 2026 14:41 Jared Kushner er einna þekktastur fyrir að vera tengdasonur Donalds Trump en hann er giftur Ivönku Trump. EPA Artur Shehu, albanskur kaupsýslumaður sem er eftirlýstur í Albaníu fyrir meint peningaþvætti vegna fíkniefnasölu, er talinn hafa falsað afsöl af landi sem Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, vill byggja umfangsmikinn dvalarstað á.
Um er að ræða svæði sem liggur að sjónum í suðvesturhluta Albaníu. Í apríl seldi Shehu strandlengjuna félaginu Albanian Land Development, fyrirtæki í eigu Sazan Real Estate Development sem Kushner og aðrir fjárfestar hafa stutt. Fyrirhuguð áform þeirra um að byggja marga milljón dollara dvalarstað hafa hlotið töluverða gagnrýni. Efnt hefur verið til mótmæla af hálfu náttúruverndarsamtaka. „Rökstuddur grunur er fyrir hendi, byggður á sönnunargögnum, um að fyrrnefndar eignir hafi verið fengnar með notkun falsaðra skjala,“ segja saksóknarar í málsskjölum sem fréttaveitan Reuters hefur í sínum fórum. Kushner er ekki sakaður sjálfur um neinar misgjörðir. Tólf íbúar í þorpinu Zvernec, nærri umræddri strandlengju, sýndu blaðamönnum Reuters afsöl og skattskýrslur sem íbúarnir sögðu sanna að þeir væru réttmætir eigendur landsins. Talsmaður Sazan Real Estate Development vildi ekki tjá sig um ásakanirnar á hendur Shehu en telur fyrirtækið að kaupin hafi verið lögleg. Talsmaður Kushner vildi ekki tjá sig um fréttina.
Albanía Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira