Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Birgir Olgeirsson skrifar 4. nóvember 2026 16:20 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra viðurkenndi að svar hans um stjórnarfundi Landsvirkjunar án Harðar Arnarsonar hefði verið ónákvæmt. Vísir/Viktor Freyr Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra viðurkenndi á Alþingi í dag að svar hans um stjórnarfundi Landsvirkjunar án Harðar Arnarsonar hefði verið ónákvæmt. Hann styður að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði málið en hafnar því að hann eða ráðuneyti hans hafi haft pólitísk afskipti af fyrirtækinu.
Ráðherrann flutti munnlega skýrslu um málefni Landsvirkjunar og samskipti ráðuneytisins við félagið. Bergþór Ólason og Guðlaugur Þór Þórðarson spurðu hann í kjölfarið um fundi án forstjórans og upplýsingar sem ráðherrann hefði veitt Alþingi um starfslok hans. Bergþór vísaði til ummæla Daða Más frá 26. október um að engir stjórnarfundir hefðu farið fram án Harðar. Hann spurði hvers vegna ráðherrann hefði fullyrt það þegar gögn málsins sýndu annað. „Það er rétt að þetta var ekki gott og nákvæmt svar varðandi stjórnarfundina,“ svaraði Daði Már. Hann sagði að fundirnir sem Hörður hefði ekki setið hefðu verið haldnir vegna minnisblaðs forstjórans um stjórnarhætti. Segir fundina hafa varðað málefni Harðar Bergþór spurði hvernig fundirnir samræmdust 6. grein laga um Landsvirkjun, þar sem segir að forstjóri skuli eiga sæti á stjórnarfundum. Hann spurði hvort lagalegt mat hefði legið að baki því að halda fundina án Harðar. Bergþór Ólason sagðist hafa fengið synjun frá stjórn Landsvirkjunar um aðgang að fundargerðum og spurði hvort ráðherrann myndi tryggja þingnefnd aðgang að öllum gögnum málsins.Vísir/Viktor Freyr Daði Már sagði forstjóra Landsvirkjunar alltaf hafa vikið af stjórnarfundum þegar málefni hans sjálfs væru rædd. Umræddir fundir hefðu allir varðað málefni sem tengdust Herði. Ráðherrann sagðist jafnframt telja sig hafa fundað án forstjóra með stjórnum allra eða nær allra ríkisfyrirtækja eftir að nýjar stjórnir tóku við. Hann tók fram að þar talaði hann eftir minni. Styður athugun en lofar ekki greiðum aðgangi að fundargerðum Bergþór spurði hvort ráðherrann myndi styðja að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fengi öll gögn málsins óstytt og kannaði sjálfstætt framgöngu hans og ráðuneytisins. Daði Már sagðist styðja að nefndin færi yfir gögnin. „Það væri bara jákvætt og gott, það myndi ég styðja.“ Bergþór sagðist þegar hafa fengið synjun frá stjórn Landsvirkjunar um aðgang að fundargerðum frá afmörkuðu tímabili á árinu. Daði Már sagði ríkið aldrei hafa óskað eftir fundargerðum ríkisfyrirtækja. Hann gæti því ekki lofað fyrir fram að auðvelt yrði að fá fundargerðir Landsvirkjunar, en sagðist myndu sýna beiðni um þær skilning. Guðlaugur segir upplýsingar hafa vantað Guðlaugur Þór sagði Daða Má ekki hafa uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart Alþingi þegar hann svaraði fyrirspurn um starfslok Harðar 19. október. Hann vísaði til 50. greinar þingskapalaga, sem skyldar ráðherra til að leggja fram upplýsingar sem þeir hafa aðgang að og hafa verulega þýðingu fyrir mat þingsins á málinu. Guðlaugur sagði ráðherrann hafa vitað af bréfi Harðar þar sem forstjórinn lýsti áhyggjum af því að pólitísk afskipti gætu gert Landsvirkjun óstarfhæfa. Ráðherrann hefði ekki greint þinginu frá því þegar spurt var um ástæður starfslokanna. „Hver einasti landsmaður er búinn að sjá að það var ekki sagan öll.“ Daði Már svaraði að ráðuneytið hefði lagt fram allar upplýsingar sem tengdust málinu. Guðlaugur ítrekaði þá spurningu sína um hvers vegna upplýsingarnar hefðu ekki komið fram í svarinu 19. október. „Þær upplýsingar hafa verið dregnar fram af stjórnarandstöðunni og fjölmiðlum þessa lands.“ Stendur við fyrra svar og treystir stjórninni Daði Már sagði bréf Harðar hafa fjallað um stjórnarhætti og hafnaði aftur ásökunum um pólitísk afskipti. „Það hafa engin pólitísk afskipti verið á hendi fjármála- og efnahagsráðuneytisins varðandi Landsvirkjun, engin.“ Hann sagði fundi sína með stjórninni hafa snúist um stjórnarhætti en ekki rekstrarmálefni fyrirtækisins. Daði Már segir stjórn Landsvirkjunar njóta fulls trausts síns til að ráða nýjan forstjóra og ætlar ekki að hafa afskipti af ráðningunni.Vísir/Anton Brink Í skýrslu sinni sagðist Daði Már hafa verið upplýstur um ágreining stjórnar og forstjóra 11. september. Hann stóð við svar sitt frá 19. október um að ágreiningurinn hefði varðað stjórnarhætti og samskipti en ekki stefnu fyrirtækisins. „Ég stend því fyllilega við svar mitt og vísa ásökunum um ósannsögli á bug.“ Stjórn Landsvirkjunar nyti áfram fulls trausts hans til að ráða nýjan forstjóra. Hann hvorki gæti né vildi hafa afskipti af þeirri ráðningu.
Landsvirkjun Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Sjá meira