Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. Innlent 12.2.2026 16:50
Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Varhugavert, ríkisfjármálaleg tímasprengja, möguleg hagstjórnarmistök í uppsiglingu og sjálfvirk útgjaldaaukning sem stuðlað getur að ósjálfbærni ríkissjóðs. Þessi orð hafa meðal annars verið notuð til að lýsa einu helsta þrætueplinu á Alþingi undanfarnar vikur. Hér er þó ekki verið að vísa í orð stjórnarandstöðunnar, heldur sérfræðinga, meðal annars úr röðum akademíunnar, Fjármálaráðs og fjármálaráðuneytisins. Innlent 12.2.2026 15:16
Baráttan um formannsembætti Framsóknar Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns. Innlent 12.2.2026 12:54
Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Innlent 6.2.2026 15:17
Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Frumvarp Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sameinað sýslumannsembætti hefur nú verið samþykkt á Alþingi. Skoðun 5. febrúar 2026 12:33
Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga. Innlent 5. febrúar 2026 11:37
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. Lífið 5. febrúar 2026 07:01
„Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýlegt verðbólguskot beina afleiðingu útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar. Almenningur borgi fyrir misfellur stjórnvalda en Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar segir um hraðahindrun að ræða. Innlent 4. febrúar 2026 21:01
Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Sigurjón Njarðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Í hans stað hefur Emilía Björt Írisardóttir Bachmann verið ráðin sem lögfræðingur þingflokksins. Ráðist var í breytingarnar í kjölfar afsagnar Guðbrandar Einarssonar sem þingmaður. Innlent 4. febrúar 2026 10:21
Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið. Innlent 4. febrúar 2026 08:12
Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar. Lífið 3. febrúar 2026 14:22
Fækka sýslumönnum í einn Alþingi hefur samþykkt frumvarp þess efnis að fækka embættum sýslumanna úr níu í eitt. Ekki liggur fyrir hvar embættið verður staðsett. Innlent 2. febrúar 2026 18:33
Sameining sýslumanna samþykkt – stofnunum fækkað um 5% Frumvarp mitt um sameinað sýslumannsembætti hefur nú verið samþykkt á Alþingi. Skoðun 2. febrúar 2026 18:30
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Fjármála- og efnahagsráðherra segir að honum finnist ekki sanngjarnt að kalla aukin útgjöld konu á landsbyggðinni upp á 45 þúsund krónur á mánuði, vegna nýs kílómetragjalds, skattahækkun. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á máli konunnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á fundi Alþingis í dag og spurði ráðherra hvort fólk á landsbyggðinni væri ekki venjulegt fólk, sem ríkisstjórnin hefði lofað að auka ekki álögur gagnvart. Innlent 2. febrúar 2026 16:44
Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Ný stefna í varnar- og öryggismálum var afgreidd úr utanríkismálanefnd í síðustu viku þar sem fulltrúar allra flokka á Alþingi taka undir sameiginlegt nefndarálit um málið. Nefndin gerir fjórar breytingatillögur við þingsályktunina sem flestar fela í sér orðalagsbreytingar. Nefndin leggur hins vegar til að ekki verði minnst sérstaklega á Evrópusambandið í stefnunni og vill árétta að varnar- og öryggisstefnan, sem verður sú fyrsta sem Alþingi setur formlega á Íslandi, verði órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnu sem þegar liggur fyrir. Alls bárust 24 umsagnir um málið. Innlent 2. febrúar 2026 10:27
Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að mikilvægt sé að tryggja sjálfstæði forsetaembættisins og segir að tillaga um að forsætisráðherra skipi forsetaritara sé millileið. Tillagan komi frá forsætisráðherra en að viðhöfðu samráði við forsetann. Mikilvægt sé að tillagan verði tekin til umræðu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Innlent 30. janúar 2026 16:40
U-beygja framundan Óreiðan sem hefur skapast á leigubifreiðamarkaði hefur ekki farið fram hjá neinum. Stöðvaskylda og fjöldatakmarkanir voru afnumdar með einu pennastriki árið 2023. Þá vantaði skýran lagaramma sem tryggir aðhald og virkt eftirlit, sérstaklega gagnvart sjálfstætt starfandi bílstjórum. Skoðun 30. janúar 2026 08:00
Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í pontu Alþingis í dag minnihlutann ekki hafa nein önnur úrræði en að halda áfram umræðum um útlendingafrumvarpið verði frumvarp um grásleppuveiðar enn á dagskrá í dag. Innlent 29. janúar 2026 15:54
„Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Ummæli Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, þess efnis hvort ekki sé tímabært að huga að því að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima og taki þátt í uppbyggingarstarfinu, féllu í grýttan jarðveg – heldur betur. Jens Garðar var ekki mjög skekinn þegar ofsafengin viðbrögðin voru borin undir hann. Innlent 29. janúar 2026 13:17
Daði Már kennir olíufélögunum um Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina. Viðskipti innlent 29. janúar 2026 12:10
Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra leggur til að leigubílar verði auðkenndir með lituðum númeraplötum og að þeir sem ætli að þreyta próf til að aka leigubíl geri það án utanaðkomandi aðstoðar. Þetta leggur ráðherra til í tillögu í samráðsgátt um ýmsar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu. Innlent 29. janúar 2026 10:38
Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, velti vöngum yfir því á þingi í dag hvort Palestínumenn sem komið hafa hingað til lands sem flóttamenn fari aftur til síns heima. Kominn væri friður í Palestínu og mikil uppbygging í vændum á Gasaströndinni. Innlent 28. janúar 2026 22:23
Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Stór hluti þeirra umsagna sem bárust um frumvarp um lagareldi barst erlendis frá og virðist hægt að rekja þær til alþjóðlega fyrirtækisins Patagonia. Atvinnuvegaráðherra og þingmenn hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa og segja erlent fyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska löggjöf. Innlent 28. janúar 2026 20:48
Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að með breytingartillögu sinni myndi frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar síbrotamanna þjóna tilgangi sínum betur. Þingflokksformaður Samfylkingar segir frumvarpið bæta öryggi innanlands og koma í veg fyrir að örfá skemmd epli geti skemmt fyrir kerfinu. Innlent 28. janúar 2026 20:09
Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lét Brynjar Níelsson þingmann Sjálfstæðisflokksins heyra í sér á Alþingi þegar sá síðarnefndi lagði fram breytingatillögu um útlendingafrumvarp sem greidd voru atkvæði um í þingsal á versta tíma, yfir landsleik Íslands og Slóveníu í handbolta. Innlent 28. janúar 2026 16:34