Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2026 21:21 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Einar Dómsmálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri reglugerð um að hækka framfærsluskilyrði þeirra sem sækja um dvalarleyfi hér á landi eða íslenskan ríkisborgararétt. Reglugerðin felur í sér töluverðar hækkanir á þeim framfærsluskilyrðum sem þetta fólk þarf að standast. Markmiðið er að „tryggja að þeir sem setjast hér að geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum en þurfi ekki að reiða sig á félagslega aðstoð“.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, sem ber titilinn „Raunhæf framfærsluskilyrði fyrir umsóknir um dvalarleyfi“, segir einnig að framfærslugeta sé einnig sterk vísbending um að viðkomandi fólk hafi myndað raunveruleg tengsl við landið og komið sér fyrir í íslensku samfélagi. Sambærilegar reglur eru sagðar gilda á öðrum Norðurlöndum. Drögin má finna hér í Samráðsgátt. Framfærsluskilyrði felur í einföldu máli sagt í sér kröfu um að sá sem sækir um dvalarleyfi þurfi að geta sýnt fram á að hann geti séð fyrir sér þann tíma sem hann vill dveljast hér á landi. Lögin sem eru nú í gildi hér á landi um bæði dvalarleyfi og umsókn um ríkisborgararétt fela í sér heimildir um þessi skilyrði en þær hafa ekki verið nýttar hingað til, samkvæmt tilkynningunni. Sjá einnig: Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Í áðurnefndri tilkynningu segir að nýja reglugerðin breyti ekki skilyrðum fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða. Engin leyfi eigi að falla sjálfkrafa úr gildi við gildistöku reglugerðarinnar heldur muni hún eiga við þegar sótt er um leyfi og þegar óafgreiddar umsóknir eru teknar fyrir. Tillagðar breytingar á framfærsluskilyrðum vegna dvalarleyfisumsóknar eða umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt.Stjórnarráðið Starfshópur um dvalarleyfi skilaði fyrir um ári skýrslu þar sem meðal annars kemur fram að viðmiðin fyrir framfærsluskilyrði séu lág hér á landi og að erfitt sé að sannreyna hvort fjármunir umsækjenda séu nægir eða í eigu þeirra. Breytingarnar fela í sér talsverðar hækkanir á viðmiðunum. Fyrir einstakling hækkar viðmiðið úr 259.951 krónu á mánuði í 501.186 krónur, sem samsvarar 93 prósenta hækkun. Fyrir einstætt foreldri með eitt barn hækkar sama viðmið í 651.541 krónu, eða um 151 prósent. Mesta hækkunin er fyrir einstætt foreldri með tvö börn. Þar fer viðmiðið í 801.897 krónur og hækkar þar með um 208 prósent. Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að við ákvörðun viðmiðanna hafi verið stuðst við meðaltal þriggja viðmiða sem stjórnvöld nota þegar í íslensku velferðarkerfi. Það eru frítekjumark húsnæðisbóta, örorkulífeyrir með heimilisuppbót og tekjumark skerðingar barnabóta hjá einstæðu foreldri. „Með reglugerðinni verða framfærsluskilyrðin skýrari, raunhæfari og fyrirsjáanlegri, bæði fyrir umsækjendur og stjórnvöld.“
Innflytjendamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira