Nýr eigandi tekur við og skötuunnendur geta andað léttar Freyja Þórisdóttir skrifar 28. október 2026 21:40 Skötuunnendur geta margir hverjir ekki ímyndað sér að borða sinn uppáhaldsfiskrétt án hamsatólgar. Þrátt fyrir að það hafi verið útlit fyrir að sú yrði raunin hefur nýr eigandi tekið við framleiðslunni. Stóruvellir/Vísir Fyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hefur verið selt en fyrir einungis mánuði síðan var útlit fyrir að fyrir að það myndi hætta framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Stofnandi fyrirtækisins segir söluna vera hið besta mál og að hann muni aðstoða nýjan eiganda við að læra handtökin enda sé um mikilvæga íslenska matarhefð að ræða. „
Þetta eru algjörlega frábærar fréttir,“ segir Garðar Jónsson í samtali við blaðamann Vísis en hann greinir frá því að framleiðslan verði áfram á Stóruvöllum í Bárðardal þar til um áramótin. Hann hóf ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni að tilraunaframleiða hamsatólg árið 1991 og er nú búinn að selja vörur frá því árið 1993 en Garðar sér fram á að fara á eftirlaun bráðlega. Hann auglýsti reksturinn til sölu í fyrra og hafði einnig reynt að ræða við Norðlenska, sem framleiðir ríflega sjö hundruð mismunandi vöruliði úr kjöti, en án árangurs. „Framleiðslan fer til Húsavíkur en við erum að framleiða þetta hérna núna hjá okkur, svo verð ég aðeins með honum [eigandanum] áfram og hjálpa honum af stað,“ segir Garðar. Nýir eigendur vilji halda áfram að framleiða vörurnar eins og hafi verið gert síðustu áratugina. Sjá einnig: Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni „Það er í sjálfu sér ekki flókið að framleiða tólgina en það er ekki allt mælanlegt og það er það sem er snúið við þetta. Nú þarf að fara í gegnum það allhressilega,“ segir hann og bætir við að það séu um þrjár vikur liðnar síðan nýi eigandinn hafði samband og spurðist fyrir um reksturinn. Sá hafi séð fréttir tengdar því að Garðar væri að hætta framleiðslunni sökum aldurs. Útikertin sem framleidd eru á Stóruvöllum eru oft keypt og lögð við leiði en þau eru framleidd úr tólg.Stóruvellir ehf. Nýju eigendurnir séu fjölskylda sem sé með húsnæði á Húsavík þar sem hafi áður verið matvælaframleiðsla. Því ætti ekki að vera mjög flókið að umbreyta rýminu en að Garðar ætli að selja þeim öll tækin og tólin sem hann hafi nýtt á Stóruvöllum þar til nú. Aðspurður segir Garðar auðvitað vera blendnar tilfinningar sem komi upp við söluna á fyrirtækinu, enda hafi hann unnið sleitulaust að framleiðslunni í fleiri áratugi. Hann sé þó fyrst og fremst ánægður með að salan sé komin á skrið og að fólk verði ekki án hamsatólgar í skötuveislunum. Sem fyrr segir eru Stóruvellir eina fyrirtækið á landinu sem framleiðir hamsatólg en einnig útikerti úr tólg sem víða er að finna við leiði og þá sér í lagi yfir veturinn.
Jól Jólamatur Matur Menning Neytendur Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Sjá meira