Viðskipti innlent

Guð­ný Helga tekur við af Haraldi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Haraldur Þórðarson, fráfarandi forstjóri Skaga, og Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS.
Haraldur Þórðarson, fráfarandi forstjóri Skaga, og Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS. Vísir/Skagi

Stjórn Skaga hefur samið við Harald I. Þórðarson, forstjóra félagsins, um starfslok en hann mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga, verður æðsti stjórnandi samstæðunnar og mun leiða hana frá og með deginum í dag, samhliða því að stýra áfram VÍS tryggingum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Kauphallartilkynningu en þar segir einnig að stjórn Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, hafi samþykkt að breyta skipulagi á samstæðu félagsins og er stefnt að því að færa starfsemi Skaga til Vátryggingafélags Íslands, VÍS trygginga.

Mikla trú

Þá sé gert ráð fyrir að önnur félög samstæðunnar færist undir VÍS tryggingar með þeim hætti að Fossar verði dótturfélag VÍS og ÍV verði dótturfélag Fossa. Stjórnin hafi þegar hafið undirbúning að breyttu skipulagi sem komi til framkvæmda á komandi mánuðum með hefðbundnum fyrirvörum um samþykki hluthafa og eftirlitsaðila.

Sem fyrr segir lætur Haraldur I. Þórðarson af störfum sem forstjóri félagsins en haft er eftir honum í tilkynningunni að hann líti til baka með stolti yfir því sem félagið hafi áorkað á undanförnum árum.

„Ég er sannfærður um að þær breytingar sem nú er ráðist í muni styrkja samstæðuna til framtíðar og skapa forsendur fyrir áframhaldandi verðmætasköpun,“ segir þar enn fremur. Þá er haft eftir Guðnýju sem segist taka við hlutverkinu með mikilli trú á framtíð samstæðunnar.

„Í félögunum býr mikil þekking, öflug þjónusta og verðmæt viðskiptasambönd sem við ætlum að byggja á. Við munum sækja fram af krafti og um leið gæta aðhalds í rekstri,“ er einnig haft eftir henni í tilkynningunni.

Spara alls 610 milljónir

Samhliða þessum breytingum er einnig horft til þess að ná fram auknu hagræði og auknum slagkrafti með breyttu skipulagi á fjármálastarfsemi samstæðunnar, er fram kemur í tilkynningunni en þar segir einnig að með breytingunum sem hafi verið kynntar náist fram einföldun í starfsemi.

Gert sé ráð fyrir að skipulagsbreytingar á fyrirkomulagi samstæðu, lækkun stjórnunarkostnaðar, fækkun stöðugilda ásamt tilfærslu verkefna og starfa muni skila sér í 270 milljóna króna lækkun kostnaðar á ársgrundvelli þegar þær séu að fullu komnar til framkvæmda.

Fyrr á árinu, þann 28. apríl síðastliðinn, voru kynntar aðgerðir til einföldunar sem námu 180 milljónum króna í lækkun kostnaðar en þá var samið við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok. Hann var forstjóri Fossa frá árinu 2023 og tók Brynjar Þór Hreinsson við eftir að hafa verið fjármálastjóri móðurfélagsins Skaga hf. frá árinu 2023. Þá var ekki ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars.

Í tilkynningunni er tekið saman hversu mikið hefur sparast á árinu en það eru alls um 610 milljónir og eru aðgerðir ársins því að skila verulegu árlegu kostnaðarhagræði.


Tengdar fréttir

Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga

Félag Haralds Þórðarsonar og eiginkonu hans Ragnhildar Þóru Ágústsdóttur myndlistarmanns, H3 ehf., hefur selt í Skaga hf. fyrir 94,5 milljónir. Haraldur Þórðarson er forstjóri Skaga hf. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×