Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Valur Páll Eiríksson skrifar 27. október 2026 10:00 Mbappé hefur reglulega verið kallaður einræðisherrann og samsettar myndir af honum og Maó koma reglulega upp í vinahópnum. Það gæti kostað hann sitt. Samsett Nokkur kínversk vörumerki hafa slitið samstarfi við franska knattspyrnumanninn Kylian Mbappé vegna ummæla hans um Mao Zedong, fyrrverandi leiðtoga Kína.
Mbappé á að hafa sagt í franska spjallþættinum The Bridge að það meme „sem fær mig mest til að hlæja ... er það þar sem er myndband af gaur, ég held að það sé kínverskur einræðisherra“. Á meðan hann talar birtist meme þar sem andliti hans hefur verið skeytt inn á mynd sem líkist Mao. „Ég nota það alltaf með vinum mínum,“ bætir framherji Real Madrid við, í óstaðfestum myndskeiðum sem hafa gengið manna á milli á netinu. Mbappé nefnir Mao ekki á nafn og upprunalega myndbandið er ekki lengur á YouTube-rás þáttarins, en skjáskot hafa breiðst út á kínverskum samfélagsmiðlum. Mbappé loses Chinese sponsors as 'Mao Zedong' remark sparks BACKLASH – Global Times The athlete reportedly confessed to not knowing who the leader was, calling him 'a Chinese dictator' The social media fallout led to firms like Dongpeng and Mengniu axing their partnerships https://t.co/BXwHWTxCGo— RT (@RT_com) October 27, 2026 Risasamningar farnir og La Liga tekin úr sýningu Kínverski knattspyrnuvefurinn Dongqiudi vakti athygli á ummælunum á mánudagskvöldið. Hörð viðbrögð fylgdu fljótt í kjölfarið á netinu og sumir notendur gagnrýndu Mbappé – sem er mjög vinsæll í Kína og með umfangsmikla auglýsingasamninga. Kínverska utanríkisráðuneytið hefur blandað sér í málið, en talsmaður þess, Lin Jian, sagði: „Við höfum tekið eftir viðkomandi fréttum. Orð og athafnir sem særa tilfinningar kínversku þjóðarinnar munu eðlilega mæta andstöðu allra hópa kínversks samfélags.“ Viðbrögðin hafa því ekki látið á sér standa en Mbappé hefur misst auglýsingasamninga við Mengniu, stærsta mjólkurframleiðanda Kína, drykkjarvörurisann Dongpeng og þá hefur kínverska ríkissjónvarpið CCTV eytt öllum myndskeiðum af Mbappé af vef sínum og mun hætta útsendingum frá spænsku úrvalsdeildinni, La Liga, hvar Mbappé leikur með Real Madrid. Gagnrýni eða grín gagnvart Maó ekki léttvægt Maó stofnaði kommúnískt Kína árið 1949 og ríkti í gegnum ólgusama áratugi á sjöunda og áttunda áratugnum. Tilraun hans til hraðrar iðnvæðingar, sem hann kallaði Stóra stökkið fram á við, leiddi til hungursneyðar sem kostaði tugi milljóna lífið. Í kjölfarið kom menningarbyltingin: ofbeldisfull hreinsun á öllum sem taldir voru ógn við kommúnismann, þar á meðal kínverskum menntamönnum, landeigendum, listamönnum og oft keppinautum innan flokksins. Andlát Maó árið 1976 markaði upphaf nýs tímabils í Kína, sem tók að opna dyr sínar fyrir alþjóðahagkerfinu. Jafnvel þegar landið fjarlægðist stjórnarhætti Maós hélt Kommúnistaflokkur Kína áfram að hampa honum sem þjóðartákni sem arfleifð hans væri hafin yfir alla gagnrýni. Einræðisherrann Mbappé Mbappé hefur reglulega verið kallaður einræðisherrann heima fyrir vegna áhrifa sinna innan fótboltaheimsins. Hann höfðaði meðal annars mál gegn áhrifavaldi og eiganda kebabstaðar árið 2024 fyrir að nota nafn sitt við samloku á matseðli staðarins. Viðurnefnið hefur einnig verið nýtt til fjölda meme-a á netinu, til að mynda þeim sem tengjast Maó Zedong. Ousmane Dembélé, liðsfélagi Mbappé í franska landsliðinu, hefur tekið upp á því að kalla Mbappé Mobut sem vísar til Mobutu Sese Seko, sem var einræðisherra í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þá Saír, í þrjá áratugi.
Spænski boltinn Kína Real Madrid CF Franski boltinn Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Rúnar Páll kynnti teymið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira