Fótbolti

Spánn á bestu þjálfarana

Sindri Sverrisson skrifar
Luis de la Fuente og Pere Romeu lyftu báðir stórum bikurum í ár.
Luis de la Fuente og Pere Romeu lyftu báðir stórum bikurum í ár. Samsett/Getty

Pere Romeu og Luis de la Fuente hlutu í kvöld verðlaun sem bestu þjálfarar ársins á Ballon d'Or-verðlaunahófinu sem France Football stendur fyrir í London.

Romeu tók við sem aðalþjálfari kvennaliðs Barcelona fyrir tveimur árum, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari, og velgengnin undir hans stjórn hefur verið nær stanslaus. Barcelona vann Meistaradeild Evrópu í vor og einnig spænsku deildina, spænska bikarinn og ofurbikarinn.

Fyrr í kvöld var Vicky López, lærimey Romeu, valin ungstirni ársins líkt og annar Börsungur, Lamine Yamal. Bestu þjálfararnir og bestu ungstirnin koma því öll frá Spáni.

Hinn 65 ára Luis de la Fuente tók við spænska landsliðinu af öðrum sem tilnefndur var í kvöld, Luis Enrique, strax eftir HM árið 2022. Undir stjórn De la Fuente hefur Spánn síðan unnið Þjóðadeildina árið 2023, Evrópumeistaratitilinn árið 2024 og svo heimsmeistaratitilinn í Ameríku í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×