Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar 1. október 2026 09:02 Árið 2023 tóku gildi ný lög um leigubifreiðaakstur. Líkt og Flokkur fólksins varaði við leiddu lögin fljótt til ýmissa vandamála. Raunin varð síðan mun verri en varað var við. Við breytinguna skapaðist rými fyrir ósanngjarna gjaldtöku og dæmi um að farþegar, oft á tíðum ferðamenn, greiddu mun hærra gjald en eðlilegt gat talist. Annað vandamál var skortur á eftirliti, þar sem leigubifreiðarstjórar gátu starfað án tengsla við leigubifreiðastöð. Til að tryggja öryggi farþega, sanngjarna verðlagningu og aðhald höfum við ráðist í markvissar aðgerðir til að styrkja umgjörð greinarinnar. Fyrsta skrefið var lagabreyting sem Alþingi samþykkti í mars og tók gildi 1. júní. Þar var undanþága frá stöðvaskyldu afnumin. Enginn leigubílstjóri ekur lengur án aðhalds og eftirlits frá stöð. Stöðvum er nú skylt að halda stafræna staðsetningarskrá allra ferða, sem sætir árlegri úttekt óháðs aðila, og að taka við kvörtunum neytenda. Jafnframt var mat á góðu orðspori gert auðveldara og í samræmi við skilning almennings á því mikilvæga hugtaki. Þannig tryggjum við að aðilar sem hafa ítrekað eða með alvarlegum hætti brotið gegn lögum og reglum sem um starfsstéttina varða geti ekki sinnt leigubifreiðaakstri. Ný reglugerð tekur gildi — aukið eftirlit og heimildir til sviptinga Með reglugerðarbreytingum sem tóku gildi á dögunum göngum við enn lengra. Hver stöð setur bílstjórum sínum skýrar hátternisreglur og viðurlög við brotum. Öllum atvikum, lögbrotum og kvörtunum neytenda er haldið til haga í rafrænni atvikaskrá. Samgöngustofa sinnir árlegu frumkvæðiseftirliti með leyfishöfum, kemur upp áhættumatskerfi og skilar ráðherra skýrslu um framkvæmdina. Heimildir til sviptinga verða auknar svo að þeir sem brjóta ítrekað eða alvarlega af sér missi leyfið. Breytingar á próftöku og litaðar númeraplötur Kröfur um sýnileika merkinga eru hertar og verðskrá þarf að vera stærri og skýrari svo að hver og einn geti áttað sig á kostnaði áður en lagt er af stað. Leyfisskírteini bílstjóra skal ávallt vera vel sýnilegt fyrir miðju á mælaborði. Enginn fær nýtt leyfi nema hann standist prófið án utanaðkomandi aðstoðar og Samgöngustofa hefur árlegt eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum. Frá 1. apríl 2027 verða leigubílar auk þess auðkenndir með lituðum númeraplötum. Enginn á að þurfa að efast um að hann sé að stíga upp í leigubíl sem sætir ströngu eftirliti. Næstu skref og eftirfylgni Krafan um rafræna skráningu og úttektir kemur til framkvæmda um næstu áramót. Þeir sem ekki uppfylla kröfurnar sæta viðurlögum Samgöngustofu og eiga leyfissviptingu yfir höfði sér. Þeir sem sinna starfi sínu af heilindum – og það er yfirgnæfandi meirihluti bílstjóra – hafa ekkert að óttast. Þeir sem gera það ekki eiga ekki heima í greininni. Við erum þó hvergi nærri hætt. Næsti áfangi er þegar á teikniborðinu og við munum fylgjast náið með áhrifum breytinganna og bregðast við með frekari aðgerðum reynist þess þörf. Höfundur er innviðaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyjólfur Ármannsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Leigubílar Samgöngumál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar