Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar 1. október 2026 08:32 Margur gæti haldið að menning sé eitthvað sem hægt er að framleiða eins og hvern annan varning. Helst kannski þeir sem hafa æft sig í að skilja eða skipuleggja hefðbundna framleiðslu undir væntu eftirspurnarfalli. Ég var fyrir rúmlega áratug í grunnskólareunioníi úr Hólabrekkuskólaárgangnum 1984. Í árgangnum mínum voru ýmis þekkt andlit úr fjármálaheiminum, þar af nokkrir landsþekktir einstaklingar úr hruninu. Það varð úr spjall og talið barst að hljómsveitinni Gusgus sem ég ásamt fleirum stofnuðum 1995 og hefur gengið í gengum ýmislegt síðan. Ég var spurður: „Hvað var bisnessplanið?” Ég varð forviða enda var þetta fyrir mér furðuleg spurning. „Við vorum bara að gera það sem okkur langaði að gera, hafa gaman að því og vona það besta,“ svaraði ég loks. Það var nú allt planið í raun. Við vorum bara fólk sem hafði hrærst hingað og þangað í senunni, með mjög mis-tilviljunarkennda aðkomu, en okkur langaði að gera „nýtt“ og „ferskt“ popp. Við vorum með „frábærar hugmyndir“ og ákafann sköpunarvilja. Hversu góðar þessar hugmyndir voru í raun, var að sjálfsögðu í fullkominni tilvistaróvissu, sem tíminn einn mundi skrá eins og honum sýndist. En þetta var alltaf að fara að vera gaman. Svona verður menning til. Skynsemisblindur sköpunarvilji og gleði með götótt plön (eða alls engin) sem ryðst upp úr hverjum þeim jarðvegi sem „senan“ er hverju sinni. Það er í raun fólkið í senunni sem elur þig upp. Það fólk hafði líka, og hefur jafnvel enn, „frábærar hugmyndir,“ sumar kannski spennandi vitleysa, aðrar ollu straumhvörfum. Sumt má jafnvel halda áfram með inn í nýja tíma og nýtt samhengi.Í senunni hendir þú þér út í samtöl, rýni, samvinnu, aðdáun og speglun. Þú gætir jafnvel flækst saman með sköpunarvilja annarra sem feykja þér á ókunnugar spennandi slóðir þar sem kvikna ennþá fleiri hugmyndir. Í þessum jarðvegi senunnar fæðist snilldin og þroskast. Þetta á jafnt við um listafólk og aðra sem þjást af sköpunarþorsta. Afurðir þessa fólks, verk snillinga og and-snillinga, eru kannski okkar menningarafurðir en það er senan sjálf sem er menningin. Hún er umhverfið sem gerir okkur kleift að skapa og njóta sköpunar og fá endurgjöf.o.k Menning er nefnilega ekki eins og að þjálfa landslið í fimleikum, þar sem þú reynir að spotta efnilega á ungum aldri, koma þeim í formfasta þjálfun og veita síðan verðlaun þeim sem standa sig best í skýrt skilgreindum verkefnum. Menning er eiginlega negatívan af því. Menning er sköpunargleði grasrótar samfélagsins í tætingslegu skipulagsleysinu sem felst í sönnu frelsi. Þessi grasrót þarf samt næringu og pláss eins og aðrir óræktargarðar. Annars visna þeir. Uppskeran er verðlaunin, verðlaun til alls samfélagsins. Líka handa þér. Ábyrgð Reykjavíkur er því mikil þegar rýmum fyrir þessar senur er lokað eitt af öðrum þessa dagana. Höfundur er tónlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Menning Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar