Neytendur

Hægst á verð­hækkun á mat­vöru

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Appelsínur urðu um 10,7 prósentum dýrari.
Appelsínur urðu um 10,7 prósentum dýrari. Vísir/Vilhelm

Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.

Þetta kemur fram í mælingum Alþýðusambands Íslands sem fylgist með verðlagi á matvöru. Dagvöruvísitala ASÍ lækkaði um 0,11 prósent milli ágúst og september 2026. Frá ágúst 2025 til september 2026 hefur dagvöruvísitalan hins vegar hækkað um 3,4 prósent.

Á einu ári hefur verð hækkað í flestum dagvöruflokkum en verð grænmetis hefur hækkað hvað mest eða um átján prósent. Appelsínur og fleiri ferskir ávextir hækkuðu þá um 10,7 prósent, ber um 5,6 prósent og epli um 5,3 prósent.

Verð á kartöflum hækkaði hvað minnst eða um eitt prósent.

„Sveiflurnar voru mun meiri í þessum vöruflokkum en í öðrum vöruflokkum. Það endurspeglar meðal annars að verð á ferskvöru getur tekið hröðum breytingum milli mánaða og eftir árstíðum,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Einn flokkur lækkaði í verði

Verðið á lambakjöti hækkaði mest, um 6,2 prósent, og fuglakjöt varð 5,7 prósentum dýrara. Þá hækkaði nautakjöt um 3,7 prósent.

„Unnið, reykt og saltað kjöt hækkaði um 4,9% og svínakjöt um 4,8%. Verðlagseftirlitið hefur áður vakið athygli á miklum verðhækkunum á kjötvörum. Þó að dregið hafi úr verðhækkunum eru þær áfram sá liður sem drífur áfram verðhækkanir á matvöru.“

Hækkanirnar komu flestar fram á fyrstu mánuðum ársins 2026 en þegar leið á árið varð verðþróunin almennt stöðugri.

Þegar litið er til mjólkurvara hækkuðu þær um tvö til fjögur prósentustig. Ostur hækkaði mest, um 4,3 prósent, og nýmjólk minnst eða um tvö prósent. Verð á þurrvöru hefur hins vegar verið stöðugra. Þá voru kornvörur eini flokkurinn sem lækkaði milli ára.

„Niðurstöðurnar sýna að verðhækkanir dagvöru dreifast mjög ójafnt. Þótt breytingar séu litlar í mörgum þurrvöruflokkum hafa miklar hækkanir á ferskvöru, kjöti og mjólkurvörum sem vega þungt í vörukörfu flestra heimila mikil bein áhrif á útgjöld heimilanna til matarinnkaupa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×