Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Lovísa Arnardóttir skrifar 21. ágúst 2026 14:34 Prís er enn ódýrust samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Vísir/Vilhelm Lægsta verðið á matvöru er enn að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís.
Í tilkynningu frá ASÍ kemur fram að það muni rúmlega 2.000 krónum á verði vörukörfu með 25 algengum neysluvörum eftir því í hvaða verslun er verslað. Verð í Prís var einnig lægst í nær öllum tilfellum þegar borin voru saman verð á 248 vörum í verslununum fjórum. Prís kemur einnig best út úr verðsamanburði á 25 algengum neysluvörum og var með lægsta verðið á öllum vörum sem bornar voru saman. Nettó var hins vegar með hæsta verðið í langflestum tilfellum, eða 24 af 25. Krónan var með hæsta verðið á einni vöru, Emmessís litapinnum. Dýrast í Nettó Í tilkynningu kemur fram að einstaka vörur séu þó umtalsvert ódýrari í Prís en öðrum verslunum, sem dæmi má nefna að heilt 770gr Myllu heimilisbrauð er 230 kr. ódýrara en í Bónus og Brauðostur 26% 460gr var 89 kr. Ódýrari í Prís en í Bónus. Vörukarfan kostaði 17.433 krónur í Prís en sama karfa kostaði 18.396 krónur í Bónus, 18.767 krónur í Krónunni og 19.522 krónur í Nettó. Það þýðir að neytandi greiddi 963 krónum meira í Bónus en í Prís og 1.334 krónum meira í krónunni eða á bilinu 5,5 prósent til 12 prósent meira en í ódýrustu versluninni. Ekki bara vörukarfan sem segir þessa sögu Þegar stærri verðsamanburður er skoðaður verður munurinn á verslununum enn skýrari. Kannað var verð á 248 sömu vörunum í öllum fjórum verslunum. Af þeim var Prís ódýrast í 246 tilfellum. Prís var með lægra verð en Krónan og Nettó á öllum 248 vörunum í samanburðinum. Bónus náði að vera ódýrara en Prís á tveimur vörum samkvæmt tilkynningu en það var á hálfri djöflatertu frá KJ þar sem hún kostaði 959 kr. í Bónus en 985 kr. í Prís og á Vanillu skyr skvísu frá Ísey þar sem hún kostaði 211 kr. í Bónus en 273 kr. í Prís. „Myndin sem gögnin draga upp er því óvenju skýr. Þetta snýst ekki aðeins um að ein tiltekin vörukarfa hafi komið hagstætt út hjá Prís eða að nokkrar vörur á tilboði hafi skekkt niðurstöðuna. Lægra verð Prís sést þvert á alla vöruflokka sem hægt var að bera saman milli verslananna,“ segir í tilkynningu ASÍ. Þar segir að í hinum enda samanburðarins sé svo Nettó með hæsta verðið í 244 tilfellum. Það er um 98 prósent þeirra vara sem bornar voru saman. Munurinn á verði einstakra vara þarf ekki að virðast mikill við fyrstu sýn. Miðað við allar 248 vörurnar var verð í Bónus að meðaltali um 29 krónum hærra en í Prís og í Krónunni um 34 krónum hærra. Í Nettó var munurinn að meðaltali um 63 krónur á hverja vöru. „Þegar margar vörur fara í innkaupakörfuna safnast þessar krónur hratt saman líkt og sést á 25 vara körfunni. Á flestum heimilum eru slík innkaup gerð reglulega og getur verðmunurinn því skipt heimilin verulegu máli. Sé miðað við sambærilegan rúmlega 2.000 króna mun á vikulegum innkaupum er um að ræða meira en 100 þúsund krónur á ári. Það er þó aðeins einfalt dæmi til að setja stærðargráðuna í samhengi enda eru innkaup heimila ólík og verð breytast,“ segir í tilkynningu ASÍ. Í tilkynningu kemur fram að muurinn á Bónus og Prís er oftast 1 kr. Aðeins 371 króna munur er á 25 vara körfunni í verslununum tveimur. Bónus er þar um 2 prósentum ódýrara en Krónan. Bilið frá þessum tveimur verslunum niður í Prís sé hins vegar meira. Vörukarfan sé um 5,5 prósent dýrari í Bónus en í Prís og um 7,7 prósent dýrari í Krónunni. Nettó sker sig síðan enn frekar úr samkvæmt tilkynningu, þar sem karfan kostar um 12 prósentum meira en í Prís. Sama mynstur sést þegar stærra vörusafnið er skoðað. Ef verð allra 248 varanna eru lögð saman – sem er fyrst og fremst mælikvarði til samanburðar en ekki raunhæf innkaupakarfa – er samanlagt verð í Bónus um 4,9 prósentum hærra en í Prís og í Krónunni um 5,6 prósentum hærra. Í Nettó er það um 10,5% hærra. Fylgjast með áhrifum Salling Vöruúrval í Bónus og Hagkaupum hefur tekið miklum breytingum undanfarin misseri. Verslanirnar hafa hafið sölu á vörum frá Salling. Neytendum getur reynst erfitt að átta sig á áhrifum slíkra breytinga, einkum ef vörurnar eru ekki fáanlegar í öðrum verslunum. Hvort áhrifin leiði til hækkunar eða lækkunar á verði ræðst af þeim vörum sem borið er saman við og því vöruúrvali sem verður eftir breytingarnar. Neytendur sem verslað hafa ódýrasta kostinn muun því standa frammi fyrir auknu úrvali á vörum á hærri verðum, sem og neytendur sem eru vanir að kaupa dýrari vörur í hærri gæðaflokki munu hafa meira úrval að velja úr á lægri verðum. Sem dæmi má nefna Lasagne Kit frá Knorr sem kostar 592 kr, en sambærilegt Lasagne kit frá Salling kostar 459 kr og einnig Lífrænt penne pasta frá Salling 500gr kostar 245 kr, en sama pasta frá Garofalo kostar 319 kr. Á hinn bóginn má nefna dæmi um vörur frá Salling sem eru dýrari þá má sjá að bæði grænt og rautt pestó frá euroshopper kosta 209 kr. en sömu vörur frá Salling kosta 279 kr. og 298 kr.
Verðlag Verslun Fjármál heimilisins Efnahagsmál Matur Matvöruverslun Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira