Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Freyja Þórisdóttir skrifar 17. ágúst 2026 21:23 Strætisvagnar á leið 1 eru oft yfirfullir á morgnana og síðdegis, þegar íbúar höfuðborgarsvæðisins flykkjast í og úr vinnu og eða skóla. Vísir/Vilhelm Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu en þar segir einnig að aukningunni sé ætlað að koma til móts við verulega fjölgun farþega sem árlega fylgi haustinu þegar skólastarf hefst á ný og flestir hafa snúið til vinnu eftir sumarfrí. Minni líkur á yfirfullum vögnum Leiðin sé sú mest notaða á höfuðborgarsvæðinu allt árið um kring en reynslan sýni að farþegum fjölgi verulega á leiðinni á haustin, sem jafnframt þýði að vagnar séu oft þétt setnir og jafnvel fullir. Með fleiri vögnum minnka verulega líkur á að vagnar yfirfyllist en tíðni ferða verður áfram sú sama, á tíu mínútna fresti að morgni og síðdegis. Það verða alls fimm aukavagnar á leiðinni þar sem tveir hafa þegar verið í akstri. Á síðustu misserum hafi tíðni mikilvægra leiða verið aukin umtalsvert auk þess sem ýmsar nýjungar hafi verið innleiddar sem stuðli að aðgengilegri almenningssamgöngum, en þar má meðal annars nefna sem dæmi snertilausar greiðslur.
Strætó Tengdar fréttir Yngstu fara flestar ferðir Nær helmingur landsmanna fer tvær til þrjár ferðir í umferðinni á dag. Ferðatíðnin minnkar almennt með hækkandi aldri en þeir yngstu fara að meðaltali 4,6 ferðir í umferðinni á dag. 7. júlí 2026 16:35 Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira
Yngstu fara flestar ferðir Nær helmingur landsmanna fer tvær til þrjár ferðir í umferðinni á dag. Ferðatíðnin minnkar almennt með hækkandi aldri en þeir yngstu fara að meðaltali 4,6 ferðir í umferðinni á dag. 7. júlí 2026 16:35