Neytendur

Vara við skor­dýrum í chia-fræjum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Framleiðslulotan sem um ræðir er með best fyrir dagsetninguna 19.03.2027 og strikamerkið 8410770912342.
Framleiðslulotan sem um ræðir er með best fyrir dagsetninguna 19.03.2027 og strikamerkið 8410770912342. MAST

Vegna skordýra sem fundust í einni krukku chia-fræja hefur Matvælastofnun varað neytendur við framleiðslulotu af Trevissan chia-fræjum sem Costco flytur inn og selur í sinni verslun.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Matvælastofnunar sem hefur innkallað eina framleiðslulotu chia-fræjanna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.

Framleiðslulotan sem hefur verið innkölluð er með geymsluþolsdagsetninguna 19.03.2027 og strikamerkið 8410770912342.

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna geta skilað henni gegn endurgreiðslu í verslun Costco í Kauptúni 3, Garðabæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×