Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2026 17:57 Natalie Harp fylgir Trump um hvert fótmál. Hún hefur víst ekki tekið sér einn frídag frá því Trump settist aftur að í Hvíta húsinu. AP/Mark Schiefelbein Donald Trump gaf Natalie Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum sínum 45 þúsund dali að gjöf í lok síðasta árs. Gjafirnar eru skilgreindar sem „peningagjöf fyrir hátíðarnar“ í opinberum skjölum en þær gætu farið gegn reglum um pólitískt skipaða embættismenn og bónusgreiðslur.
45 þúsund dalir samsvara um 5,4 milljónum króna. Fáir, ef einhverjir, verja meiri tíma með Trump en hin 35 ára gamla Natalie Harp. Skrifborð hennar er rétt fyrir utan skrifstofu forsetans. Hún situr fundi með forsetanum og ferðast með honum um heiminn allan. Þá er Harp þekkt fyrir að skilja eftir persónuleg bréf til Trumps í Hvíta húsinu . Í eitt bréfið hafði hún skrifað: „Þú ert það eina sem skiptir mig máli.“ Harp ber tvo titla í Hvíta húsinu sem báðir snúast um að hún sé aðstoðarkona forsetans. Þá er hún með um 150 þúsund dali í laun á ári, sem samsvarar rúmum átján milljónum króna. Sjá einnig: Hver er „mennski prentari“ Trumps? Auk hennar fengu þeir Margor Martin og Chamberlain Harris, sem starfa einnig náið með forsetanum, einnig „peningagjöf fyrir hátíðarnar“, samkvæmt áðurnefndum opinberum gögnum. Þá fékk Walt Nauta, aðstoðarmaður Trumps til langs tíma, tuttugu þúsund dali. Nauta var ákærður með Trump á sínum tíma vegna skjalamálsins svokallaða. Hann var sakaður um að reyna að hjálpa Trump að fela opinberu skjölin sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu eftir fyrsta kjörtímabil hans. Sjá einnig: Sakaður um að hafa skipað starfsmanni að eyða myndbandsupptökum Opinberum starfsmönnum í Bandaríkjunum er heilt yfir meinað að taka við öðrum launum en fyrir opinber störf sín. Eins og fram kemur í grein New York Times gaf ríkisstjórnin í fyrra út tilmæli um að eingöngu ætti að veita allra bestu opinberu starfsmönnunum bónusa. Var þá einnig tekið fram að bannað væri að veita bónusa til pólitískt skipaðra embættismanna. Reuters hefur eftir einum af talsmönnum Hvíta hússins að Trump eigi sér langa sögu þess að gefa nánu starfsfólki gjafir um jólin. Það eigi bæði við almenna starfsmenn og ráðgjafa og hann hafi gert þetta bæði í einkageiranum og hinum opinbera geira. „Þessar gjafir hafa ekkert með opinberar skyldur þessara starfsmanna að gera og eru því algerlega leyfðar samkvæmt viðeigandi lögum og siðferðisreglum,“ sagði David Ingle.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira