Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Kjartan Kjartansson skrifar 7. september 2026 14:11 Hljóðið í Merz kanslara var þungt þegar hann hitti leiðtoga Kristilega demókrataflokks síns í morgun. Flokkurinn fékk útreið í Saxlandi-Anholt þar sem fjarhægrimenn unnu stórsigur. Vísir/EPA Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, segist í áfalli yfir kosningasigri jaðarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) í sambandslandskosningum í gær. Hann muni draga dilk á eftir sér.
Kristilegur demókrataflokkur Marz galt afhroð í sambandslandskosningunum í Saxlandi-Anholt þar sem AfD vann stórsigur í gær. Þrátt fyrir að AfD hafi ekki náð hreinum meirihluta gæti hann mögulega myndað stjórn með vinstripopúlistaflokki sem er einnig hallur undir Rússland. Merz sagði í morgun að allir væru í áfalli yfir úrslitunum og að þeir hefðu ekki átt von á að svona færi þrátt fyrir að skoðanakannanir hefðu lengi bent til sigurs AfD. Sagði hann að úrslitin ættu eftir að draga dilk á eftir sér. Sú staðreynd að hátt í sextíu prósent kjósenda í sambandslandinu hefðu kosið stjórnmálaflokka sem grafi undan lýðræðislegum stofnunum ríkisins væri eitthvað sem ekki væri hægt að hunsa og láta eins og hefði ekki gerst. Virtist Merz þar vísa til Bandalags Söhru Wagenknecht (BSW), vinstri þjóðernisflokks, sem er líkt og AfD andsnúinn innflytjendum og stuðningi Þýskalands við Úkraínu. BSW er eini flokkurinn sem hefur ekki útilokað að koma AfD til valda í Saxlandi-Anholt en hann náði naumlega upp í þau fimm prósent atkvæða sem hann þurfti til þess að ná inn þingmönnum. Þrátt fyrir uppgang þessara flokka sagðist Merz ekki ætla að gefa þumlung eftir í þeirri afstöðu sinni að verja þyrfti frelsið, sérstaklega fyrir Rússlandi. Hann viðurkenndi þó að hann þyrfti að bæta sig í hvernig hann miðlaði aðgerðum stjórnvalda til kjósenda. „Markmið forystu Rússlands er að hrista í stoðum gilda þess sem við kölluðum áður vestrið. Þau gildi eru ekki umsemjanleg,“ sagði kanslarinn. Hann skaut einnig á AfD þegar hann benti á hverjir hefðu fagnað sigri flokksins. Sagði hann úrslitunum fagnað „2.500 kílómetra til austurs“ og vísaði þar til Rússlands. „Það kemur ekkert á óvart í ljósi þess hver reyndi að ala á og að stuðla að þessari niðurstöðu. Í þeim skilningi vitum við nákvæmlega við hverja er að eiga hér.“
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Rússland Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira