Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Samúel Karl Ólason skrifar 24. ágúst 2026 10:43 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu. Forsetaembætti Úkraínu Úkraínumenn vilja frið en ætla ekki að öðlast hann með því að gefast upp fyrir Rússum. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi vanmetið úkraínsku þjóðina verulega.
Þetta er meðal þess sem kom fram í löngu ávarpi forsetans sem hann birti á samfélagsmiðlum. Tilefnið er að í dag eru 35 ár liðin frá því að Úkraína öðlaðist sjálfstæði frá Sovétríkjunum sálugu. Í ávarpinu fór Selenskí um víðan völl en hann varði töluverðum tíma í að ræða hetjudáð úkraínskra hermanna og fórn þeirra. Þakkaði hann öllum þeim sem höfðu þjónað og sagði úkraínska herinn vera orðinn þann besta í allri Evrópu. Hann sagði að Rússar hefðu talið Úkraínumenn eins og yngri bróður en það hefði sýnt sig að þessar þjóðir væru svo gott sem ókunnugar, þar sem Rússar vissu ekki hvað það þýddi að hundruð þúsunda sjálfboðaliða stigu fram til að verja það sem þeim þótti vænt um. Seinna í ávarpinu sagði Selenskí einnig að Pútín væri fastur í fortíðinni. Hann sæi Úkraínu ekki í raunverulegu ljósi, heldur eingöngu eins og ríkinu væri lýst í skýrslum í Kreml. Thirty-five years ago, Ukraine restored its independence!Happy holiday, great people of a great country!Happy Independence Day of Ukraine!Glory to Ukraine!🇺🇦🇺🇦🇺🇦 pic.twitter.com/krxKimsUjM— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) August 24, 2026 Ætla ekki að gefast upp „Úkraína vill frið en við ætlum ekki að einfaldlega gefast upp,“ sagði Selenskí. Hann sagði að undanfarin 35 ár hefðu Úkraínumenn heyrt margar dómsdagsspár um ríki sitt en þær hefðu allar reynst rangar. Vísaði hann sérstaklega til þess þegar innrás Rússa hófst árið 2022 og spár um að varnir Úkraínumanna myndu fljótt fjalla saman. Það hefði ekki gerst og Úkraínumenn hefðu staðið í hárinu á Rússum í 1.643 daga. Sjá einnig: Færir Selenskí eldflaugateikningar Selenskí sagði að Rússum yrði ekki leyft að blekkja heiminn varðandi það að Úkraína þyrfti eingöngu að gefa eftir Donbas-héraðið til að binda enda á stríðið. Rússum væri ekki treystandi og sagði hann að Úkraínumenn myndu ekki hjálpa Pútín og félögum við að bjarga lífum hálfrar milljónar rússneskra hermanna. „Pútín vonar að við séum þreytt. En við vitum að hann er dauðlegur. Hann hefur aldrei skilið okkur og nú hefur hann ekki tíma til þess,“ sagði Selenskí. „Þú vildir taka alla Úkraínu, allt ríki okkar. Þess í stað hefur þú tapað olíuvinnslum, flota þínum, gróða og heilli kynslóð sem þú sendir í hakkavélina.“ Munu finna lausn á skotflaugum Pútíns Hann ræddi einnig þá erfiðu stöðu sem hefði skapast vegna skotflaugaárása Rússa, sem Úkraínumenn eru að miklu leyti varnarlausir gegn. Finna þyrfti lausn við þessum árásum, eins og Úkraínumenn hefðu áður gert gagnvart ýmsum tegundum árása Rússa. Þeir myndu einnig finna lausnir á þessum árásum. Selenskí sagði frá því um helgina að leggja ætti sérstaka áherslu á það að granda skotpöllum Rússa í Rússlandi. Nauðsynlegt væri að finna þá og gera árásir á þá en þannig væri hægt að fækka skotflaugaárásum á Úkraínu.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira