Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Bjarki Sigurðsson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 23. ágúst 2026 16:37 Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams er einn af eigendum Priksins við Bankastræti. Vísir/Aðsend/Vilhelm Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað. Vísir greindi frá því í dag að annar skemmtistaðanna sem lögregla lét loka í nótt vegna fjölda ungmenna þar inni væri Prikið. Í yfirlýsingu sem Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, einn af eigendum Priksins, sendi fréttastofu kemur fram að ungmenni hafi gert ákveðið áhlaup á staðinn. „Staðurinn er vinsæll, með virka og reglulega tónleikadagskrá sem trekkir að. Röð atvika veldur því að á tímapunkti var eitthvað magn af fólki undir aldri búið að ná að lauma sér inn á staðinn. Hafa fölsuð skilríki verið okkur og mörgum öðrum stöðum í miðborginni hvimleitt vandamál á tækniöld, en í gærkvöldi var álagið einnig slíkt að ekki náðist að gæta bakrýmis þar sem kliffært er til að „stelast“ inn,“ segir í yfirlýsingunni. Ekkert samband haft við eigendur Starfsmenn staðarins hafi unnið að því að koma fólki sem stalst inn aftur út þegar lögreglu bar að garði. Búið var að bæta við dyravörðum og ákveðið að telja fólk aftur inn á staðinn. Í yfirlýsingunni segir að lögregla hafi sagt þær aðgerðir fullnægjandi en svo á klaufalegan hátt dregið það til baka og gert starfsmönnum að loka staðnum. „Viðbragð lögreglu var að okkar mati brot á meðalhófsreglu og samkomulaginu um örugga skemmtistaði sem Prikið hefur alltaf virt: Var virkt viðbragð og virk aðgerð við aðstæðum í gangi, fullt samstarf staðarins við viðbragðsaðila og sýnilegur vilji okkar til að árétta aðstæður á einni stærstu nótt skemmtanalífsins til staðar. Ekkert samband var haft við eigendur og ábyrgðarmenn leyfis heldur þurfti starfsfólk að hafa samband til að upplýsa um aðstæður. Finnst okkur það því miður óboðlegt og mun málið sæta umkvörtunum þess efnis,“ segir í yfirlýsingunni. Vinna ávallt eftir samkomulaginu Prikið kom að því að stofna Samtök reykvískra skemmtistaða sem fóru fyrir samkomulaginu um örugga skemmtistaði. „Þar er ein mikilvægasta grunnstoðin sú að ungmennum yngri en 20 ára er óheimil dvöl á skemmtistað eftir kl. 22:00. Einnig er þar ákvæði í stefnu lögreglu um að stuðla að góðum samskiptum við stjórnendur og starfsfólk skemmtistaða, og að öll formleg og óformleg samskipti eigi að fara fram beint og milliliðalaust milli starfsmanna skemmtistaða og tengiliða lögreglu,“ segir í yfirlýsingunni. Tekið er þó fram að aðhald og innlit viðbragðsaðila sé ávallt velkomið á Prikinu. Þá þakka eigendurnir öllum fyrir Menningarnótt, starfsfólki, listafólki, viðbragðsaðilum og gestum. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni. Prikið lenti eins og fleiri staðir í ákveðnu áhlaupi ungmenna í gærkvöldi sem sprengdi allan skala. En staðurinn er vinsæll, með með virka og reglulega tónleikadagskrá sem trekkir að. Röð atvika veldur því að á tímapunkti var eitthvað magn af fólki undir aldri búið að ná að lauma sér inná staðinn. Hafa fölsuð skilríki verið okkur og mörgum öðrum stöðum í miðborginni hvimleitt vandamál á tækniöld, en í gærkvöldi var álagið einnig slíkt að ekki náðist að gæta bakrýmis þar sem kliffært er til að “stelast” inn. Voru aðgerðir gegn því í miðjum klíðum þegar lögreglu ber að garði í gær, bætt við dyragæslu og ákveðið að telja mannskap aftur inn á staðinn. Eftir að hafa sagt þær aðgerðir fullnægjandi, var það síðan dregið til baka af lögreglu á klaufalegan hátt, og ákvörðun tekin um að loka þrátt fyrir þær. Prikið hefur alla tíð unnið náið með viðbragðaðilum við að halda röð og reglu í miðborginni. Meðal annars kom staðurinn að því að stofna Samtök Reykvískra Skemmtistaða á sínum tíma, sem fór fyrir sáttmála um Örugga skemmtistaði. Þar er ein mikilvægasta grunnstoðin sú að ungmennum yngri en 20 ára er óheimil dvöl á skemmtistað eftir kl. 22:00. Einnig er þar ákvæði í stefnu lögreglu um það að stuðla að góðum samskiptum við stjórnendur og starfsfólk skemmtistaða, og að öll formleg og óformleg samskipti eigi að fara fram beint og milliliðalaust milli starfsmanna skemmtistaða og tengiliði lögreglu. Viðbragð löglegu var að okkar mati brot á meðalhófsreglu og samkomulaginu um Örugga Skemmtistaði sem Prikið hefur alltaf virt: Var virkt viðbragð og virk aðgerð við aðstæðum í gangi, fullt samstarf staðarins við viðbragðsaðila og sýnilegur vilji okkar til að árétta aðstæður á einni stærstu nótt skemmtanalífsins til staðar. Ekkert samband var haft við eigendur og ábyrgðarmenn leyfis heldur þurfti starfsfólk að hafa samband til að upplýsa um aðstæður, finnst okkur það því miður óboðlegt og mun málið sæta umkvörtunum þess efnis. Tökum þó fram að aðhald og innlit viðbragðsaðila er ávallt velkomið. Gömul saga og ný. Að því sögðu þökkum við öllum fyrir Menningarnótt, starfsfólki, listafólki, viðbragðsaðilum og gestum, minnum á að það er opið í morgunmat frá 10:00 alla daga. Gömlu Reykjavík var einnig lokað Kránni og veitingastaðnum Gömlu Reykjavík á Austurvelli var einnig lokað og rýmd í gærkvöldi vegna viðveru ungmenna undir tuttugu ára aldri. Þetta staðfestir Skarphéðinn Guðmundsson, einn rekstraraðila Gömlu Reykjavíkur. Hann segist sjálfur ekki hafa verið viðstaddur þegar lögreglu bar að garði og því ekki geta gefið neinar upplýsingar um atburðinn, til að mynda hversu margir gestir hefðu verið inni á staðnum þegar hann var rýmdur. Aðspurður segir Skarphéðinn lokunina vissulega hafa verið mikið tap fyrir staðinn á kvöldi sem þessu þar sem margt var um manninn í miðborg Reykjavíkur. Hann hafi ekki lent í slíku atviki áður. Veitingastaðir Reykjavík Lögreglan Lögreglumál Næturlíf Menningarnótt Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Sjá meira
Prikið lenti eins og fleiri staðir í ákveðnu áhlaupi ungmenna í gærkvöldi sem sprengdi allan skala. En staðurinn er vinsæll, með með virka og reglulega tónleikadagskrá sem trekkir að. Röð atvika veldur því að á tímapunkti var eitthvað magn af fólki undir aldri búið að ná að lauma sér inná staðinn. Hafa fölsuð skilríki verið okkur og mörgum öðrum stöðum í miðborginni hvimleitt vandamál á tækniöld, en í gærkvöldi var álagið einnig slíkt að ekki náðist að gæta bakrýmis þar sem kliffært er til að “stelast” inn. Voru aðgerðir gegn því í miðjum klíðum þegar lögreglu ber að garði í gær, bætt við dyragæslu og ákveðið að telja mannskap aftur inn á staðinn. Eftir að hafa sagt þær aðgerðir fullnægjandi, var það síðan dregið til baka af lögreglu á klaufalegan hátt, og ákvörðun tekin um að loka þrátt fyrir þær. Prikið hefur alla tíð unnið náið með viðbragðaðilum við að halda röð og reglu í miðborginni. Meðal annars kom staðurinn að því að stofna Samtök Reykvískra Skemmtistaða á sínum tíma, sem fór fyrir sáttmála um Örugga skemmtistaði. Þar er ein mikilvægasta grunnstoðin sú að ungmennum yngri en 20 ára er óheimil dvöl á skemmtistað eftir kl. 22:00. Einnig er þar ákvæði í stefnu lögreglu um það að stuðla að góðum samskiptum við stjórnendur og starfsfólk skemmtistaða, og að öll formleg og óformleg samskipti eigi að fara fram beint og milliliðalaust milli starfsmanna skemmtistaða og tengiliði lögreglu. Viðbragð löglegu var að okkar mati brot á meðalhófsreglu og samkomulaginu um Örugga Skemmtistaði sem Prikið hefur alltaf virt: Var virkt viðbragð og virk aðgerð við aðstæðum í gangi, fullt samstarf staðarins við viðbragðsaðila og sýnilegur vilji okkar til að árétta aðstæður á einni stærstu nótt skemmtanalífsins til staðar. Ekkert samband var haft við eigendur og ábyrgðarmenn leyfis heldur þurfti starfsfólk að hafa samband til að upplýsa um aðstæður, finnst okkur það því miður óboðlegt og mun málið sæta umkvörtunum þess efnis. Tökum þó fram að aðhald og innlit viðbragðsaðila er ávallt velkomið. Gömul saga og ný. Að því sögðu þökkum við öllum fyrir Menningarnótt, starfsfólki, listafólki, viðbragðsaðilum og gestum, minnum á að það er opið í morgunmat frá 10:00 alla daga.
Veitingastaðir Reykjavík Lögreglan Lögreglumál Næturlíf Menningarnótt Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Sjá meira