Innlent

Viður­kennir mis­tök við skipan Jafnréttissjóðs

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. vísir/einar

„Þetta voru mistök, þau hafa verið leiðrétt núna þannig að kynjahlutföllin eru eins og við viljum hafa þau. Ég legg bara áherslu á það að þegar svona mistök verða þá er sjálfsagt mál að leiðrétta þau.“

Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. 

Hún segir skipta máli að gæta að kynjaskiptingu hjá Jafnréttissjóði sem var orðinn skipaður þremur konum. Það hafi verið mistök og þau verði eðlilega leiðrétt. Endurspegla þurfi sjónarmið beggja kvenna.

„Þetta mál stendur þannig að það hefur verið lagfært. Það skiptir auðvitað máli í öllu samhengi að við gætum að kynjahlutföllum og það virkar auðvitað í báðar áttir. Staðan er þannig að það eru ólíkir aðilar sem skipa í þessa stjórn. Ég valdi formanninn og tilnefningar fyrir hina tvo komu annars staðar frá.“

Frétt er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×