Innlent

Bandero leitar skjóls í Reykja­vík

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Bandero í Sundahöfn.
Bandero í Sundahöfn. vísir/vilhelm

Skipið Bandero siglir nú til Reykjavíkur í skjól frá suðaustanáttinni. Til stóð að flytja skipið í gærkvöldi en þá var skipstjórinn hvergi sjáanlegur.

Gunnar Tryggvason hafnstjóri Faxaflóahafna segir að gamla höfnin í Reykjavík sé mun skjólbetri en Akranesshöfn í áttunum sem spáð er.

Eins og fyrr segir stóð til að flytja skipið í gærkvöldi en þegar mannskapurinn kom á Skagann var engan skipstjóra að finna. Í dag var svo gerð önnur tilraun í dag og þá var ekki hirt um það hver væri um borð eða ekki.

Bandero er skip samtaka hvalveiðiandstæðingsins Pauls Watson og hefur legið við bryggju á Akranesi frá því í ágúst. Skipið var kyrrsett en kyrrsetningunni var aflétt fyrir nokkru síðan. Ógreidd hafnargjöld og annað tilfallandi hefur orðið til þess að skipið er hér enn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×