Erlent

„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“

Samúel Karl Ólason skrifar
Trump svaraði spurningum blaðamanna áður en hann steig upp í þyrlu fyrir utan Hvíta húsið í gær.
Trump svaraði spurningum blaðamanna áður en hann steig upp í þyrlu fyrir utan Hvíta húsið í gær. AP/Julia Demaree Nikhinson

Donald Trump staðhæfði í gær að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí hefðu samþykkt orkuinnviðaopnahlé, af því að hann hefði sagt að þeir ættu að samþykkja það. Þá hélt forsetinn því fram að það væri Selenskí en ekki Pútín sem stæði í vegi friðar, eins og hann hefur ítrekað gert áður.

Forsetinn var spurður út í yfirlýsingu hans um að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að gera ekki árásir á orkuinnviði hvors annars og þá sérstaklega það að ráðamenn í báðum ríkjum sögðust ekkert kannast við slíkt samkomulag.

„Jæja, þeir samþykktu. Veistu af hverju? Af því að ég sagði „þið samþykkið“. Það er ástæðan. Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu.“

Þá var hann spurður út í það að Rússar hefðu strax brotið gegn þessu meinta samkomulagi.

„Tja, ég þyrfti að skoða það, því það hafa verið brot frá báðum hliðum.“

Forsetinn var strax í kjölfarið spurður út í ummæli Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, um að hann styddi umrætt vopnahlé en að Pútín gerði það ekki og hvað hann hefði um það að segja.

„Ég held þeir styðji það báðir. Þeir vilja báðir semja en kunna það ekki.“

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í morgun að Úkraínumenn hefðu ekki gert eina árás á orkuinnviði í Rússlandi síðan Trump lýsti yfir samkomulaginu sem var ekki fyrir um tveimur dögum síðan. Hann sagði Rússa hafa gert fjölda slíkra árása í Úkraínu.

Það sagði hann í yfirlýsingu um mjög umfangsmiklar árásir Rússa á Úkraínu undanfarna daga.

Trump var spurður að því í gær hvernig hann ætlaði að fá Pútín til að standa við þetta vopnahlé.

„Það sem ég held að sé að gerast, er að hann vill semja. Við þurfum bara að fá Selenskí til að vilja semja,“ sagði Trump. Því næst spurði hann hvaðan blaðamaðurinn væri og sá svaraði Póllandi.

„Nú, forsetinn ykkar er góður forseti. Þú veist að ég lýsti yfir stuðningi við hann og hann vann, þú veist það er það ekki?“

Blaðamaðurinn pólski hélt áfram og spurði Trump hvar hvernig hann sæi vilja til samninga hjá Pútín á meðan hann héldi árásum á Úkraínu áfram.

„Ég held að þeir muni semja. Í rauninni held ég að Pútín vilji semja meira en Selenskí,“ sagði Trump og gekk áfram.

Undanfarna daga hefur Trump verið verulega gagnrýninn á Selenskí og þá að miklu leyti vegna árása Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Sala olíuafurða er helsta tekjulind rússneska ríkisins og Úkraínumenn segja hana notaða til að fjármagna stríðsrekstur Pútíns í Úkraínu.

Trump vill meina að hátt verð á díselolíu sé þessum árásum að kenna en ekki stríði Bandaríkjanna gegn Íran. Það háa verð þykir líklegt til að koma verulega niður á Repúblikönum í þingkosningunum í næsta mánuði og vill Trump lækka verðið.

Sérfræðingar segja það ekki rétt hjá forsetanum. Stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í hærra verði en árásir Úkraínumanna í Rússlandi.

Trump því yfir á dögunum að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði í hvoru landi fyrir sig. Ekkert slíkt samkomulag lá fyrir en þetta er í annað sinn sem Trump segir ósatt um að samið hafi verið um vopnahlé af þessu tagi.

Hótuðu að hætta aðstoð

Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínumanna frá Bandaríkjunum síðan þá. Það hefur meðal annars verið gert í gegnum NATO-verkefni sem kallast PURL og hefur Ísland tekið þátt í því.

Bandaríkjamenn hafa sömuleiðis deilt upplýsingum um undirbúning Rússa fyrir árásir í Úkraínu, hreyfingar rússneskra sveita á víglínunni og möguleg skotmörk í Rússlandi, svo eitthvað sé nefnt, með Úkraínumönnum.

Um helgina tilkynntu bandarískir embættismenn kollegum sínum í Úkraínu að þessu yrði mögulega hætt, ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Var það eftir að Trump opinberaði að Bandaríkin ætluðu að kaupa díselolíu frá Rússlandi.

Eins og frægt er hét Trump því að binda enda á stríðið á fyrsta degi eftir að hann sneri aftur í Hvíta húsið eða jafnvel fyrr. Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá honum.

Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa miklum refsiaðgerðum til að reyna að þvinga þá að samningaborðinu en hefur hingað til ekki staðið við stóru orðin. Í viðræðum við Rússa og Úkraínumenn hefur Trump og hans fólk lagt mesta áherslu á að fá Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa.

Sjá einnig: Í­huga að fara nýja leið og bjóða Rússum við­skipta­samninga

Ráðamenn í Rússlandi hafa, að virðist, ekkert komið til móts við Bandaríkjamenn í þessum viðræðum eða dregið úr kröfum sínum.

Selenskí var spurður út í þetta í viðtali á dögunum. Af hverju Trump og aðrir eins og Elon Musk, kenndu honum um þetta stríð en ekki Pútín.

Forsetinn sagði það vera vegna þess að þeir fyndu enga leið til að stöðva Pútín. Það væri mun erfiðara fyrir þá að þrýsta á Pútín en hann. Það væri auðveldara að kenna Úkraínumönnum um.

Trúir ekki að Rússar og Kínverjar aðstoði klerkastjórnina

Trump saðist einnig í gær þeirrar skoðunar að Kínverjar og Rússar séu ekki að aðstoða klerkastjórnina í Íran í stríðinu gegn Bandaríkjunum. Ef svo sé, skipti það ekki miklu máli en Trump segist enga trú hafa á því. Það er þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi beitt refsiaðgerðum vegna þessarar aðstoðar og að ráðherrar hafi talað um það opinberlega.

„Þeir hafa of miklu að tapa og við myndum vita af því. Við myndum vita það mjög hratt,“ skrifaði Trump á Truth social í gærkvöldi.

Í færslunni kvartaði hann yfir ummælum um þessa meintu aðstoð og sagði þau koma frá öfgafullum vinstri-fávitum og geðsjúklingum.

Færsla Trumps á Truth Social.

Rússar og Kínverjar hafa um árabil verið meðal nánustu bandamanna klerkastjórnarinnar í Íran og hafa bæði ríki lengi verið sökuð um að aðstoða klerkastjórnina við að komast hjá refsiaðgerðum.

Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í lok febrúar hafa ríkin þó ekki komið Írönum til aðstoðar með opinberum hætti. Rússar segjast hafa sent mannúðaraðstoð til Íran en hafa ekki opinberað neina annars konar aðstoð.

Ráðamenn í Kína hafa, eins og fram kemur í grein AFP-fréttaveitunnar, gagnrýnt árásirnar og lokun Hormússunds

Fregnir hafa ítrekað borist af því að ráðamenn í Rússlandi og Kína hafi komið klerkastjórninni til aðstoðar. Meðal annars hafi Íranir fengið upplýsingar um möguleg skotmörk fyrir eldflauga- og drónaárásir frá bandamönnum sínum og hergögn.

Þá hafa borist fregnir af því að Íranir hafi fengið sendingar af svokölluðum MANPADS-kerfum frá Kína en það eru loftvarnarkerfi sem geta verið borin á öxlinni.

Hegseth sagði frá aðstoðinni

Í gegnum árin hefur Trump ítrekað talað máli einræðisherra eins og Xi Jinping og Vladimírs Pútín. Hann hefur lýst báðum sem „hlutlausum“ í stríði hans gegn Íran.

Í síðasta mánuði blés hann á fregnir af því að Íranir hefðu fengið gervihnattamyndir frá Kína sem hefðu hjálpað þeim að gera árás á bandaríska herstöð í júní. Þrír bandarískir hermenn féllu í árásinni.

Það er þrátt fyrir að utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafi beitt þrjú kínversk gervihnattafyrirtæki refsiaðgerðum í maí vegna aðstoðar handa klerkastjórninni í Íran, eins og tíundað er í grein Newsweek þar sem farið er yfir það hvernig Rússar og Kínverjar hafa aðstoðað klerkastjórnina og það að yfirvöld í Bandaríkjunum viti af því.

Þar er meðal annars vísað til þess að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, hafi sagt það á fundi með öldungadeildarþingmönnum í sumar. Einnig er vísað í ummæli íranskra embættismanna um aðstoð frá þessum ríkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×