Viðskipti innlent

Telur ESB-viðræður engu breyta um verð­bólgu og stýrivexti

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri telur að ef kæmi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið mynd það ekki hafa áhrif á stýrivexti eða verðbólgu.
Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri telur að ef kæmi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið mynd það ekki hafa áhrif á stýrivexti eða verðbólgu. Vísir

Hagkerfið sýnir víða merki um kólnun en Seðlabankinn hækkaði engu að síður stýrivexti í dag. Seðlabankastjóri vísar til aukinnar verðbólgu, meðal annars vegna hækkunnar opinberra gjalda og stríðsátaka. Ráðherra segir ákvörðunina vonbrigði

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú átta prósent.  Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Verðbólga mælist nú 5,3 prósent eða ríflega tvöfalt meiri en verðbólgumarkmið Seðlabankans. 

Tveir áhrifaþættir

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir tvö atriði helst hafa áhrif.

„Þetta er aðallega vegna hækkunar á opinberum útgjöldum og á olíuverði og fleiri innfluttum þáttum vegna stríðsátaka sem hafa tekið verðbólguna yfir fimm prósent,“ segir Ásgeir. 

Í skýrslu Peningastefnunefndar sem kom út samfara ákvörðuninni kemur m.a. fram að einkaneysla er minni en búist var við, atvinnuleysi eykst á almennum vinnumarkaði og verð á húsnæði og matvöru gefur aðeins eftir á meðan almenn þjónusta og innfluttar vörur hækka. 

Úr riti Peningastefnunefndar.Vísir

Ísland með hæstu launin

Aðilar vinnumarkaðarins hafa gefið út að forsendur kjarasamninga gætu verið brostnar því verðbólgan sé yfir samningsmarkmiðum. Þó gætir líka bjartsýni. 

 Ásgeir kallaði eftir ábyrgð af hálfu vinnumarkaðarins á fundinum í dag.

„Nú er Ísland komið með hæstu laun í Evrópu. Hvað getum við haldið áfram lengi. Ég óska eftir samfylgd. Þetta á bæði við um atvinnurekendur og verkalýðsfélög. Ef þau vilja sjá lægri vexti eru ákveðnir hlutir sem þau geta gert,“ segir Ásgeir. 

Hið opinbera þurfi að halda að sér höndum

Ásgeir sendir líka opinberum stofnunum, ríki og sveitarfélögum, tóninn.

„Hið opinbera hefur leitt launahækkanir. Nú erum við að sjá störfum fækka hjá einkaaðilum en fjölga í opinbera geiranum.  Það er mikilvægt að sjá hið opinbera taka á þessum hlutum,“ segir hann.

Aðildarviðræður hafi ekki áhrif

Aðspurður hvort það muni hafa áhrif á verðbólgu eða stýrivexti ef þjóðin ákveður að ganga á ný til aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst svara Ásgeir. 

„Við álítum það ekki. Það mun mögulega koma meira innflæði fjármagns ef það kemur til aðildarviðræðna en að öðru leyti teljum við þær ekki hafa áhrif,“ segir Ásgeir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×