Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Jón Þór Stefánsson skrifar 12. ágúst 2026 20:03 Svona lítur síðan Kira Ísland út. skjáskot Vefsíðan Kira Ísland hefur undanfarið birt fjölda auglýsinga á Facebook, ætlaðar Íslendingum, og sagst selja vörur, aðallega græjur fyrir heimilið og garðinn. Auglýsingarnar hafa nú verið fjarlægðar af Facebook. Kona sem keypti tvær ryksugur á síðunni fyrir rúmum tveimur vikum hefur enn ekki fengið þær afhentar. Hún hefur sent fyrirspurnir og leitað skýringa á þessu, en engin svör fengið.
Guðrún Dagbjört er konan sem um ræðir. Hún lét vita af þessu á Instagram og hefur síðan fengið skilaboð frá fólki sem hefur lent í því sama með þessa síðu. Hún segist hafa heyrt af svipuðum reynslusögum frá minnst tíu manns. DV fjallaði um málið, og segist Guðrún einnig hafa séð í athugasemdum þar frásagnir fólks á sömu leið. „Ég er alltaf að fá fleiri tölvupósta frá fólki sem hefur lent í þessu,“ segir Guðrún, sem tekur fram að hún vilji ekki ásaka neinn um neitt, komi svo skyndilega í ljós að ekkert bogið hafi átt sér stað, og hún fái ryksugurnar afhentar. Hún hefur þó gert lögreglu viðvart um málið. Hún tekur fram að 18 þúsund krónur, sem er það sem hún eyddi á síðunni, sé ekkert sérlega mikill peningur. En séu mikið fleiri að lenda í því sama geti upphæðinn verið ansi há. Fimmtíu prósent af öllu Á auglýsingasafni Meta, móðurfyrirtækis Facebook, sagði í gær að Kira Ísland væri með 67 virkar auglýsingar. Þar voru ýmsar vörur sagðar til sölu, en nánast allar þeirra sagðar á 50 prósent afslætti. Jafnframt höfðu þær allar hlotið sömu einkunn 4.8 úr 164 umsögnum. Við skoðun á þessu sama auglýsingasafni í morgun voru engar auglýsingar lengur sjáanlegar á vegum Kira Ísland. Þar kemur fram að Facebook-síðan hafi verið stofnuð í apríl síðastliðnum. Myndir af frægum notaðar „Þetta er mjög vel uppsett síða, þangað til maður skoðar hana betur. Það er auðvelt að vera vitur eftir á, en nú sér maður að ekki er hægt að hafa samband og svona. Þá er hægt að sjá að maður hefði kannski átt að hugsa sig tvisvar um,“ segir Guðrún um sjálfa vefsíðuna sem er enn uppi. Þar eru átta vörur þar sagðar til sölu. Klikki maður á einhverja þeirra til að skoða nánar má til dæmis sjá að hverri vöru fylgir umsögn frá meintum ánægðum viðskiptavini. Fjórar þessara umsagna birtast undir sama nafni, „Sigríður Magnúsdóttir“, en af myndum umsagnaraðilana að dæma er um þrjár mismunandi konur að ræða. Það er að segja, einungis ein mynd fylgir fleiri en einni umsögn þeirra sem skrifaðar eru í nafni „Sigríðar Magnúsdóttur“. Líkt og sjá má eru myndir af Eydísi Ásbjörnsdóttur og Gunnar heitnum Þórðarsyni notaðar. Þá eru þrjár umsagnanna skrifaðar í sama nafni. Að minnsta kosti ein þessara mynda er af konu sem heitir alls ekki „Sigríður Magnúsdóttir“ heldur af Eydísi Ásbjörnsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar. Ekki nóg með það, þá birtist ein umsögn í nafni „Magnúsar Einarssonar“ en myndin sem fylgir honum er af Gunnar heitnum Þórðarsyni, tónlistarmanni, sem lést á dögunum. Sífelld sumarútsala Þess má einnig geta að efst á vefsíðunni eru viðskiptavinir látnir vita að sumarútsala sé að renna út, og það alltaf innan nokkurra klukkutíma. Þá er sjáanleg klukka sem telur niður hvenær umrædd útsala á að klárast. Þessi klukka virðist sífellt endurnýjast. Þegar blaðamaður skoðaði síðuna á sunnudagskvöld voru sjö tímar eftir, um miðvikudagseftirmiðdegi voru ellefu tímar til stefnu, og nú þegar þessi frétt er skrifuð eru klukkutímarnir sem sagðir eru eftir átta talsins. Á vefsíðu Kira Ísland má sjá hnappinn „Um Okkur“. Ýti maður á hann, blasir við leitargluggi, en engar upplýsingar um síðuna eða aðstandendur hennar, líkt og gefið er til kynna. Fréttastofa sendi í gær erindi á Kira Ísland en hefur ekki fengið nein svör.
Neytendur Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira