Viðskipti innlent

Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Friðrika Hjördís tók við sem framkvæmdastjóri viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða í ágúst 2024.
Friðrika Hjördís tók við sem framkvæmdastjóri viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða í ágúst 2024.

Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, hefur hætt störfum sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða, umræðuvettvangi sem Ólafur Ragnar Grímsson stofnaði árið 2013 og hefur leitt síðan.

„Persónulegar fréttir: Eftir næstum þrjú æðisleg ár, hef ég ákveðið að stíga til hliðar frá hlutverki mínu sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða,“ skrifaði Friðrika í færslu á LinkedIn-síðu sinni fyrr í dag.

Samkvæmt síðu hennar hefur hún starfað hjá Hringborði norðurslóða síðan í maí 2024, fyrst sem verkefnastjóri í tvo mánuði og síðan sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþingsins í um tvö ár.

„Eftir því sem mikilvægi norðurslóða á alþjóðavettvangi eykst verður sífellt mikilvægara fyrir fólk frá ólíkum löndum og atvinnugreinum að koma saman, hlusta hvert á annað og skiptast á hugmyndum. Það er einmitt það sem gerir Hringborð norðurslóða að svo mikilvægum fundarstað þar sem tengsl eru byggð upp, traust skapast og dyr eru opnaðar fyrir gagnlegu samstarfi.“

Friðrika segist afar stolt af því að hafa byggt upp Viðskiptaþing Hringborðs norðurslóða síðustu ár og fylgist spennt með næsta kafla þess undir forystu fyrrverandi samstarfskonu sinnar, Matthildar Maríu Rafnsdóttur. Að lokum þakkar hún öllum þeim sem hún hefur starfað með og segist hlakka til að geta varið meiri tíma í eigin verkefnum.

Hringborð Norðurslóða var stofnað árið 2013 af Ólafi Ragnari Grímssyni og öflugum hópi fólks með fjölbreytt tengsl við norðurslóðir. Tilgangur samtakanna er að vera umræðuvettvangur milli stjórnmála- og viðskiptaleiðtoga, umhverfissérfræðinga, vísindamanna, fulltrúa frumbyggja og annarra alþjóðlegra hagsmunaaðila um vandamál sem steðja að Norðurslóðum og halda samtökin árlega ráðstefnu í október.

Fréttinni hefur verið breytt þar sem titill Friðriku var ekki réttur. Hún var fyrst titluð sem framkvæmdastjóri Hringborðs norðurslóða en hið rétta er að hún var framkvæmdastjóri viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×