„Þetta er kvikindisleg spurning“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 11:02 Kjartan Atli Kjartansson stýrði þættinum og sérfræðingarnir voru Albert Brynjar Ingason og Halldór Árnason. Þeir fengu að venju krefjandi spurningar. Sýn Sport Stúkan gerði upp sextándu umferð í Bestu deild karla í síðasta þætti sínum og sérfræðingarnir fengu einnig þrjár áhugaverðar spurningar eða umræðupunkta í lok þáttarins.
Kjartan Atli Kjartansson stýrði þættinum og sérfræðingarnir voru Albert Brynjar Ingason og Halldór Árnason.Kjartan spurði þá fyrst hver væru bestu félagskiptin í Bestu deild karla í sumar. Þá vildi hann fá sýn þeirra á stutta endurkomu Arons Einars Gunnarssonar í Þór sem entist bara í einn leik og fékk svo sérfræðingana til að velta því fyrir sér hvaða lið væru líklegust til að falla úr deildinni í haust.„Þetta er kvikindisleg spurning því að það á náttúrulega mikið vatn eftir að renna til sjávar en hvaða lið eru líklegust til að falla?“ spurði Kjartan Atli.„Sigurður Höskuldsson [þjálfari Þórs] var að lofa að þeir myndu sækja sér leikmenn en ég ætla bara að horfa á liðið eins og í dag og þá set ég Þór í fallsætið. Ég ætla líka bara að halda mig við það lið sem ég setti í fallsætið fyrir mót og það þrátt fyrir að þeir séu búnir að líta mjög vel út. Ég ætla að halda mig við ÍBV,“ sagði Albert Brynjar.„Þetta er erfið spurning og ósanngjörn. KA gæti verið í vandræðum,“ sagði Halldór en Albert skaut inn í. „Það eru öll lið þarna í vandræðum.“ Þórsliðið er neðst með 12 stig, FH-ingar eru líka í fallsæti með 13 stig. KA og Stjarnan eru tveimur stigum fyrir ofan fallsæti og það eru síðan aðeins þrjú stig á milli ÍBV og fallsætisins.„Mér líður eins og Stjarnan sé bara með allt of sterkan leikmannahóp og gæði hópsins munu sjá til þess að þeir verði ekki þarna í þessari baráttu. FH-ingar eru farnir að safna stigum en þetta eru auðvitað fáir sigrar hjá þeim,“ sagði Halldór„Þannig að ég held að KA geti sogast í þessa baráttu þarna með mögulega ÍBV og svo FH og Þór,“ sagði Halldór.„Maður talar oft um leðjuslag en það verður extra mikil leðja núna,“ sagði Kjartan Atli en það má horfa á alla framlenginguna hér fyrir neðan. Klippa: Framlengingin eftir sextándu umferð Bestu deildar karla
Besta deild karla KA Stúkan Þór Akureyri FH ÍBV Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira