KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttamynd

Þór - KA | Mikið í húfi í Akureyrarslag

KA berst um heimavallarrétt í úrslitakeppninni og Þórsarar geta enn náð síðasta sætinu þar. Liðin mætast því í afar mikilvægum grannaslag í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Handbolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fleury fór á kostum gegn FH

Erin Fleury fór mikinn í liði Þórs/KA sem hafði betur, 4-2, gegn FH þegar að liðin mættust í Lengjubikar kvenna í Boganum á Akureyri í kvöld. Á Kópavogsvelli unnu Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks svo 6-0 sigur á ÍBV.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Af hverju ekki?“

Jónatan Þór Magnús­son, þjálfari KA/Þórs segir sitt lið mæta pressu­laust til leiks gegn besta liði Ís­lands um þessar mundir, Val, í undanúr­slitum bikar­keppninnar í hand­bolta í kvöld. Eftir­vænting er ríkjandi hjá norðan­konum fyrir leik kvöldsins og trúin á sigri til staðar.

Handbolti
Fréttamynd

„Breiða­blik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“

Ívar Örn Árnason segir að það hafi verið gríðarlega erfið ákvörðun að yfirgefa KA-menn en samt sem áður tímabært, að takast á við nýja áskorun í faðmi Blika. Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur fest kaup á varnarmanninum. Ívar hefur leikið meira og minna allan sinn feril hjá KA en þessi 29 ára miðvörður og hefur gegnt fyrirliðastöðunni fyrir norðan síðustu tímabil.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KA/Þór klemmdi Sel­foss við botninn

Selfoss er áfram á botni Olís-deildar kvenna í handbolta eftir tap í spennuleik gegn KA/Þór á Selfossi í dag. Sæti Akureyringa í úrslitakeppninni er þar með formlega tryggt.

Handbolti