„Við munum ná markmiðum okkar“ Samúel Karl Ólason skrifar 28. júlí 2026 11:14 Vladimír Pútín hrósaði rússneskum þingmönnum fyrir vinnu þeirra undanfarin ár og sagði kjörtímabilið hafa verið erfitt fyrir Rússland. AP/ Sergei Bobylev, Sputnik Vladimír Pútín lýsti því yfir í gær að útgjöld til varnarmála ættu að vera í forgangi í Rússlandi næstu þrjú árin, hið minnsta. Í ávarpi forsetans á Dúmunni, þingi Rússlands, sagði hann nýja heimsmynd vera að myndast og bölsóttaðist út í Vesturlönd fyrir að reyna að einangra Rússland.
Pútín sagði síðasta kjörtímabil hafa verið erfitt en að framtíð föðurlandsins og rússnesku þjóðarinnar væri í húfi. „Í dag höldum við áfram að verja öryggi og sjálfstæði ríkisins, sannleikann og réttlæti,“ sagði Pútín í ávarpi sínu. Þá lofaði hann þá sem taka þátt í stríðinu gegn Úkraínu og sagði þá studda af allri rússnesku þjóðinni. „Við munum ná markmiðum okkar og saman munum við gera allt fyrir sigur, fyrir Rússland.“ Framsókn rússneskra hermanna í Úkraínu hefur verið stöðvuð víðast hvar á víglínunni. Þeir sækja þó enn fram í Dónetsk-héraði en þar er langmestur þungi í sókn þeirra. Úkraínumönnum hefur einnig tekist að auka umfang árása í Rússlandi verulega, með beitingu eldflauga og dróna. Þá hefur skilvirkni árása Rússa á Úkraínskar borgir aukist, samhliða skorti á flugskeytum í loftvarnarkerfi. Það er helsta, ef ekki eina, vörn Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum. Sakaði Vesturlönd um Rússafælni Í ávarpinu þakkaði hann þingmönnum fyrir störf þeirra varðandi ólöglega innlimun fjögurra héraða Úkraínu í rússneska sambandsríkið. Nefndi hann Dónetsk, Lúhansk, Sapórisjía og Kerson. Af þeim héruðum stjórna Rússar eingöngu Lúhansk að fullu. Hann sagði eina markmið sitt og annarra stjórnenda Rússlands vera að framfylgja vilja þjóðarinnar og að það væru ráðamenn á Vesturlöndum ósáttir við og sakaði þá um „heimsmet“ í Rússafælni. Pútín sagði að Rússar hefðu lengi staðið frammi fyrir „ólöglegum“ refsiaðgerðum, frá „rússneska vorinu“ 2014, þegar Rússar hernámu og innlimuðu ólöglega Krímskaga af Úkraínu og studdu aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Forsetinn sagði að Rússafælnin hefði náð hámarki eftir 2022, þegar Rússar réðust aftur inn í Úkraínu. Refsiaðgerðir hefðu náð hámarki og markmiðið væri að reyna að grafa undan stöðugleika í Rússlandi. Pútín sakaði Vesturlönd því næst um „hryðjuverkastarfsemi“, þar sem ekki hefði tekist að sigra Rússa á vígvellinum. Sjá einnig: Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Sama hversu erfið síðustu ár hefðu verið sagði Pútín að stjórnvöld hefðu gert allt sem á þeirra valdi stæði til að styðja við bak þjóðarinnar og þakkaði hann þingmönnum fyrir þá vinnu. Vísaði hann sérstaklega til stuðnings við fjölskyldur, heilbrigðiskerfi og nýtt menntakerfi sem snerist um að bæta föðurlandsást nýrra kynslóða og kynna fyrir þeim andleg og siðgerðileg gildi. Þegar hann talaði um fjárlög næstu þriggja ára sagði hann að mikla áherslu ætti að leggja á stuðning við rússneskt samfélag eða velferðarmál, auk þess að styrkja varnir ríkisins. Þá skrifaði Pútín undir tilskipun um stækkun rússneska hersins. Til stendur að fjölga hermönnum um 25 þúsund, úr 1.510.000 í 1.535.000, samkvæmt frétt rússnesku fréttaveitunnar RIA. Sjá einnig: Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Þetta er í þriðja sinn á árinu sem Pútín skrifar undir tilskipun um stækkun rússneska hersins. Lánahringrás Rússneski miðillinn Moscow Times segir að ríkisstjórn Pútíns hafi í síðasta mánuði lagt til að 12,9 billjón (tólf núll) rúblum yrði varið til varnarmála. Í fyrra var upphæðin 13,5 billjónir. Samkvæmt frétt Bloomberg yrðu fjárútlát til varnarmála þó í rauninni nærri 21,8 billjónir rúblna, eða um helmingur fjárlaga ársins. Til að fjármagna þessi útgjöld stendur til að skera niður í velferðarmálum. Rússneska ríkinu hefur gengið illa að selja skuldabréf á opnum markaði og var tæplega sex billjóna rúbla halli á rekstri ríkisins á fyrri hluta ársins. Moscow Times sagði frá því um helgina að fjármálaráðuneyti Rússlands væri að undirbúa lántöku frá ríkisreknum bönkum í Rússlandi. Haft var eftir sérfræðingum að kaup ríkisrekinna banka Rússlands á skuldabréfum væru í raun fjármögnuð af rússneska Seðlabankanum. Ríkið væri að lána bönkunum svo bankarnir gætu lánað ríkinu, í einföldu máli sagt.
Rússland Vladimír Pútín Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira