Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júlí 2026 14:01 Í mars 2022 flugu Andrew Tate og bróðir hans Tristan til Bandaríkjanna frá Rúmeníu, þar sem þeir hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, kynmök við ólögráða einstakling, mansal og peningaþvætti, Getty Bresk yfirvöld hafa gefið út þrjátíu og átta nýjar kærur á hendur hinum umdeilda áhrifavaldi Andrew Tate og bróður hans Tristan Tate en þeir voru í gær handteknir í Miami í Bandaríkjunum. Heildarfjöldi ákæra á hendur bræðrunum er nú fimmtíu og níu, að sögn bresku lögreglunnar.
Breska ríkisútvarpið (BBC) greindi frá þessu en meðal þess sem bætist við langan lista af ákærum eru ákærur á hendur Andrew, þrjátíu og níu ára, fyrir sjö nauðganir til viðbótar þeim sem hann hefur þegar verið ákærður fyrir. Þá eru aðrar ákærur á hendur honum meðal annars í tengslum við mansal og barnaníðsefni. Neitað allri sök Ákærur á hendur Tristan, þrjátíu og sjö ára, snúast um tvær nauðganir og þrjú mismunandi brot fyrir að skipuleggja eða greiða fyrir mansali í kynferðislegum tilgangi, er fram kemur í frétt BBC. Meint brot eru sögð hafa átt sér stað á milli júlí 2010 og ágúst 2017 en Tate-bræðurnir hafa áður neitað allri sök. Farið hefur verið fram á framsal þeirra til Bretlands en saksóknarar hafa hafið málsmeðferð til að framselja bræðurna, sem eru með tvöfalt ríkisfang, breskt og bandarískt, til Bretlands. „Þessar ákæruákvarðanir voru teknar eftir að frekari sönnunargögn bárust frá lögreglunni í Bedfordshire og færa heildarfjölda meintra fórnarlamba í þessu máli upp í sjö,“ sagði Malcolm McHaffie, yfirmaður sérstakrar glæpadeildar hjá breska ríkissaksóknaraembættinu. Í kjölfar þessa stendur Andrew frammi fyrir alls fjörutíu og tveimur ákærum í Bretlandi og Tristan frammi fyrir sautján. Sakaðir um grafalvarleg brot Haft er eftir lögmanni bræðranna, Joseph McBride, í frétt BBC að heimurinn viti að Andrew og Tristan séu saklausir. „Óvinir þeirra vita það best af öllum. Það er einmitt þess vegna sem ráðist hefur verið á þá,“ hélt McBride áfram og lýsti nýju bresku ákærunum sem „pólitískri árás“. „Við erum fullviss um að þegar hæfur dómari sér staðreyndirnar og þegar dómsmálaráðuneytið tekst á við þessa hróplegu misnotkun á eigin valdi munu Andrew og Tristan Tate ganga frjálsir. “ Lögmaðurinn Matt Jury, sem fer með mál nokkurra meintra breskra fórnarlamba Andrews, fagnaði ákærunum hins vegar ákaft og er haft eftir henni að „Andrew og Tristan Tate eru sakaðir um sum af alvarlegustu mögulegu brotunum, þar á meðal margar nauðganir og mansal. Það er kominn tími til að þeir svari til saka“.
Mál Andrew Tate Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Dómsmál Erlend sakamál Lögreglumál Rúmenía Bandaríkin Tengdar fréttir Kenndu öðrum að tæla konur í „Stríðsherbergi“ Samskipti milli Andrew Tate og samstarfsmanna hans benda til þess að þeir og menn þeim tengdir hafi tælt tugi kvenna til þess að taka upp klámefni sem þeir birtu á netinu. Afrit af samskiptum þeirra var lekið til BBC en miðillinn segist hafa fundið minnst 45 möguleg fórnarlömb Tate og félaga hans. 31. ágúst 2023 16:19 Bræðurnir Tate lausir úr stofufangelsi, aftur Andrew Tate hefur verið sleppt úr stofufangelsi í Rúmeníu en hann má ekki yfirgefa ríkið. Tate er verulega umdeildur en hann og bróðir hans Tristan hafa staðið frammi fyrir ásökunum um fjölmörg brot eins og mansal og nauðgun, sem meðal annars eru sögð hafa verið framin á ólögráða stúlkum. 14. janúar 2025 16:55 Húsleit hjá Andrew Tate vegna brota gegn ólögráða einstaklingum Grímuklæddir lögregluþjónar gerðu húsleit á heimili breska áhrifavaldsins Andrews Tate við Búkarest og á þremur öðrum stöðum í morgun. Húsleitin var gerð eftir að nýjar ásakanir um mansal og peningaþvætti komu fram. 21. ágúst 2024 09:52 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Kenndu öðrum að tæla konur í „Stríðsherbergi“ Samskipti milli Andrew Tate og samstarfsmanna hans benda til þess að þeir og menn þeim tengdir hafi tælt tugi kvenna til þess að taka upp klámefni sem þeir birtu á netinu. Afrit af samskiptum þeirra var lekið til BBC en miðillinn segist hafa fundið minnst 45 möguleg fórnarlömb Tate og félaga hans. 31. ágúst 2023 16:19
Bræðurnir Tate lausir úr stofufangelsi, aftur Andrew Tate hefur verið sleppt úr stofufangelsi í Rúmeníu en hann má ekki yfirgefa ríkið. Tate er verulega umdeildur en hann og bróðir hans Tristan hafa staðið frammi fyrir ásökunum um fjölmörg brot eins og mansal og nauðgun, sem meðal annars eru sögð hafa verið framin á ólögráða stúlkum. 14. janúar 2025 16:55
Húsleit hjá Andrew Tate vegna brota gegn ólögráða einstaklingum Grímuklæddir lögregluþjónar gerðu húsleit á heimili breska áhrifavaldsins Andrews Tate við Búkarest og á þremur öðrum stöðum í morgun. Húsleitin var gerð eftir að nýjar ásakanir um mansal og peningaþvætti komu fram. 21. ágúst 2024 09:52