Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Andri Broddason skrifar 16. júlí 2026 15:16 Thomas Tuchel stefnirá að halda áfram að þjálfa enska landsliðið þrátt fyrir tap gegn Argentínu. Justin Setterfield/Getty Images Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, stefnir á að halda áfram að þjálfa liðið fram yfir Evrópumótið 2028. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir skiptingarnar sínar þegar England reyndi að halda forystunni á móti Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.
England náði forystu gegn Argentínu í gær á 55. mínútu eftir mark frá Anthony Gordon. Eftir að hafa skorað markið ákvað enska liðið að leggjast einfaldlega í vörn og endaði England að vera aðeins tólf prósent með boltann eftir að hafa náð forystu. Það kom í bakið á þeim þar sem Argentína náði að skora tvö mörk undir lok leiksins og vinna England. Í staðinn fyrir að England myndi halda áfram að stíga upp á Argentínu, sem virkaði fyrstu 55 mínútur leiksins, lagðist enska liðið niður. Það var ljóst að liðið ætlaði að halda eins marks forystu þegar meira en 30 mínútur voru eftir. Þegar leið á leikinn gerði Tuchel einnig skiptingar þar sem hann setti þrjá varnarmenn inn á völlinn. Hann tók miðjumann, kantmann og bakvörð út af og því ljóst að hann vildi fjölmenna í vörninni og verja forystuna. Tuchel hefur verið gagnrýndur eftir leikinn vegna þess að hann lagðist í vörn of snemma í leiknum og gaf Argentínu svigrúm til að sækja. Það hafi kostað England fyrsta úrslitaleik heimsmeistaramótsins í 60 ár. Reynir að vera bjartsýnn Í viðtali við Sky Sports eftir leikinn sagði Tuchel að hann væri með samning fram yfir EM 2028 og hann ætlaði að halda áfram. Hann segist horfa bjartsýnisaugum á Evrópumótið þó að það sé erfitt að vera bjartsýnn þessa stundina. Tuchel var ráðinn sem þjálfari enska landsliðsins í janúar árið 2025. Á þessu ári framlengdi hann samning sinn við landsliðið sem dugir fram yfir Evrópumótið 2028. England mætir Frakklandi í leik um bronsverðlaun heimsmeistaramótsins á laugardaginn. Þetta er skrítinn leikur þar sem bæði lið eru svekkt yfir því að þurfa að spila leikinn. Tuchel vill þó meina að England geti verið stolt yfir því að komast í tvo undanúrslitaleiki heimsmeistaramótsins á átta árum. England tapaði fyrir Króatíu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í Rússlandi árið 2018.
HM 2026 í fótbolta England Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira