Stjórn Como gefur frá sér sína miða Andri Broddason skrifar 10. september 2026 11:30 Mirwan Suwarso, forseti Como, hefur ákveðið að gefa stuðningsmönnum sína miða fyrir leik kvöldsins. Marco M. Mantovani/Getty Images Como tryggði sig í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins og mun spila sinn fyrsta Meistaradeildarleik þegar liðið mætir RB Leipzig á heimavelli. Stjórnarmeðlimir félagsins hafa ákveðið að gefa frá sér miðana sína til elstu stuðningsmanna félagsins.
Leikvöllur Como er staðsettur rétt hjá samnefndu vatni og er pláss fyrir um 14 þúsund áhorfendur og er ljóst að ekki allir stuðningsmenn félagsins komast á völlinn. Mikil eftirspurn er eftir miðum á leikinn og verður þetta líklega stærsti leikur í sögu félagsins. Mirwan Suwarso, forseti félagsins, var vonsvikinn yfir því að margir af elstu stuðningsmönnum félagsins komust ekki á leikinn. Hann tók þá til sinna ráða og ákvað því að gefa sína fjóra miða sem hann fékk fyrir leikinn til elstu stuðningsmanna félagsins sem voru ekki með miða. Aðrir í stjórn félagsins gerðu slíkt hið sama og losnuðu 40 miðar á leikinn. Hópur af elstu stuðningsmönnum félagsins fær miðana að gjöf fyrir að standa með félaginu. Margir af eldri stuðningsmönnum félagsins eiga í erfiðleikum með að fara á leiki með hækkandi aldri og ætlar félagið einfaldlega að sækja þá stuðningsmenn sem eiga í erfiðleikum með að mæta. Sumir af stuðningsmönnunum búa í sveitum nálægt Como og þiggja því glaðir að vera sóttir. Elstu stuðningsmennirnir eru á tíræðisaldri og hafa því fylgt liði sínu lengi. Como hefur hugsað vel um sína stuðningsmenn og býður oft upp á fría drykki þegar liðið skorar. Það gæti orðið dýrt fyrir Como ef gott gengi liðsins ætlar að halda áfram. Eftir þrjár umferðir í ítölsku úrvalsdeildinni er liðið ennþá taplaust. Leikur Como og RB Leipzig er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 3 og hefst útsending klukkan 18:50.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira