Enski boltinn

Segir fé­lagið í skítnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Glasner fór mikinn eftir tap sinna manna í Nottingham Forest í gær.
Glasner fór mikinn eftir tap sinna manna í Nottingham Forest í gær. Getty

Öskureiður Oliver Glasner gaf í skyn að hann gæti gengið á brott frá Nottingham Forest nema félagið gerði miklar breytingar í kjölfar taps liðsins fyrir Brentford í gær.

Furðulegt sjálfsmark Nikola Milenkovic og mark Igor Thiago undir lokin skiluðu Forest í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 tap gegn Brentford.

Glasner, sem er fyrrverandi stjóri Crystal Palace, var ráðinn sem fimmti aðalþjálfari Forest á innan við einu ári í upphafi tímabilsins, en Austurríkismaðurinn varaði við því að félagið gæti brátt þurft að leita að þeim sjötta nema „skítaaðstæður“ batni.

„Ef við tölum bara um úrslitin í dag, þá eru þau vonbrigði og pirrandi. Og við verðum að viðurkenna að þetta er ekki nógu gott,“ sagði hann.

„Ef maður tapar fjórum af síðustu fimm leikjum er það ekki nógu gott. Og þess vegna er kominn tími til, að mínu mati, að við breytum hlutunum, að ég breyti hlutunum, og það er það sem ég mun gera.“

„Mér finnst ég hafa séð ýmislegt frá fyrsta degi. Mér finnst núna að ég hafi kannski gert of miklar málamiðlanir í sumu. Og það eru alltaf málamiðlanir. Þetta er skýr leið. Ég mun segja hvað við viljum gera og hvað við þurfum að gera,“ sagði Glasner í langri ræðu sinni á blaðamannafundi eftir leik.

„Og ef leikmennirnir taka þátt held ég að við getum snúið þessu við. Og ef ekki, þá kemur sjötti stjórinn inn,“

„Þetta hefur engar afleiðingar fyrir mig. Ég held að þið sjáið það. Ég fer bara heim og borða morgunmat með fjölskyldunni,“

„Enginn þarf að vorkenna Oliver Glasner. Ef ég vildi gæti ég byrjað annars staðar eftir tvær vikur. Ég mun ekki gera það. En leikmennirnir og starfsfólkið eru áfram í sömu stöðu,“ segir Glasner og bætir við:

„Og þetta eru sömu, afsakið orðbragðið, skítaaðstæður og félagið var í í fyrra. Þannig að það þarf að breyta og byggja upp frá grunni,“

„Og þetta er mér ljóst. Og þetta er það sem ég mun gera. Og án nokkurra málamiðlana. Engra, engra. Og ef þetta gengur ekki upp, þá láta þeir mig vita.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×