Enski boltinn

Aston Villa í mál við Jamie Carragher

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jamie Carragher er sérfræðingur hjá Sky Sports.
Jamie Carragher er sérfræðingur hjá Sky Sports. Getty/Adam Davy

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa tilkynnti í kvöld á miðlum sínum að félagið ætli í mál við knattspyrnusérfræðinginn Jamie Carragher.

„Aston Villa mun höfða mál gegn Jamie Carragher vegna óásættanlegra móðgana hans í garð félagsins og stuðningsmanna þess,“ segir í tilkynningunni og undir hana skrifar stjórnarformaðurinn Nassef Sawiris og hann bætir við:

„Aston Villa mun ekki leyfa neinum að stöðva uppgang okkar í enskri og evrópskri knattspyrnu.“

Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og sérfræðingur hjá Sky Sports, vakti hörð viðbrögð stuðningsmanna Villa með ummælum sínum um stærð félagsins og framtíð knattspyrnustjórans Unai Emery.

Hinn 48 ára gamli Carragher sagði í hlaðvarpinu Stick to Football að „Aston Villa verði aldrei Manchester United“ og gaf í skyn að Emery gæti þess í stað farið til United og tekið við af Michael Carrick.

„Hann hlýtur að vilja fá tækifæri til að stýra risaliði á ný. Það er goggunarröð í fótboltanum, hvort sem manni líkar það betur eða verr,“ sagði Carragher

„Real Madrid tekur besta leikmann Manchester United, það gerðu þeir með (Cristiano) Ronaldo. Og svo eru lið fyrir ofan Aston Villa og þau munu taka leikmennina þeirra eða knattspyrnustjórann, þannig að haldið kjafti, stuðningsmenn Aston Villa. Aston Villa verður aldrei Manchester United.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×