Enski boltinn

Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs

Sindri Sverrisson skrifar
Michael Salisbury dómari ræðir við stjóra liðanna og bendir þeim á drónann sem var ástæða þess að leikurinn var stöðvaður.
Michael Salisbury dómari ræðir við stjóra liðanna og bendir þeim á drónann sem var ástæða þess að leikurinn var stöðvaður. Samsett/Getty

Leikur Fleetwood Town og Arsenal í enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld var stöðvaður strax á 2. mínútu vegna drónaflugs yfir vellinum.

Leikurinn fer fram á heimavelli Fleetwood í samnefndum bæ í norðvesturhluta Englands.

Dróninn sveif yfir Highbury-leikvanginum, sem rúmar um 5.300 manns, og ákvað dómarinn Michael Salisbury að stöðva þá leik.

Leikmenn vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið en Salisbury reyndi að útskýra málið fyrir þeim og stjórum liðanna.

Ekki kom til þess að leikmenn yrðu að fara inn til búningsklefa en þeir urðu að bíða úti á velli í um sjö mínútur áður en hægt var að halda áfram.

Hægt er að horfa á leikinn á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×